tenging bóta almannatrygginga við launavísitölu.
Frú forseti. Þessi ríkisstjórn tók þá ákvörðun að skilja ekki eldra fólk og öryrkja eftir þegar kæmi að kjarahækkunum í landinu. Það er meðvituð ákvörðun. Það á ekkert að koma á óvart og ég ætla ekkert að fela mig á bak við það að verið er að taka meðvitaða ákvörðun um að það verði ekki frekari gliðnun þegar kemur að lágmarksréttindum á vinnumarkaði og hjá fólki sem er að fá strípaðar greiðslur úr almannatryggingakerfinu. Í dag er það þannig að rúmlega 100.000 kr. munur er á þessum greiðslum og það eina sem þessi ríkisstjórn er að gera — þetta er önnur fyrirspurnin sem við höfum fengið frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins um þetta — það eina sem við erum að gera er að stöðva gliðnunina. Það er enginn að bæta upp þessar 105.000 kr. sem þó munar þarna um. Þetta er til umræðu hér. Gott og vel. Nú var það þannig áður í lögum um almannatryggingakerfið að 69. gr., sem er 62. gr., tók einmitt til þessa máls þar sem var pólitískur vilji til að láta þennan launaflokk, ef svo má segja, greiðsluflokk, fylgja launum eða vísitölu neysluverðs, hvort heldur sem hærra var. Það var einfaldlega ekki staðið við það. En þessi ríkisstjórn er að fylgja þessu, fylgja þessum anda laganna sem oft var rætt um.
Hvað varðar áhrifin af þessu þá skilst mér, það er hægt að fá staðfestingu á þessu í gegnum hv. fjárlaganefnd, endilega að spyrja um það núna við vinnslu fjármálaáætlunar, að þetta séu mögulega í kringum 3 milljarðar á ári sem þetta munar. En mér er bæði ljúft og skylt að afla þessara upplýsinga fyrir hv. þingmann. Í stóru myndinni, þó að auðvitað eigum við að vera vakin og sofin yfir viðbótarútgjöldum, þá eru þetta ekki stærstu útgjöldin sem ég hef áhyggjur af. En launakostnaður ríkissjóðs er kannski í kringum 25, 30% af útgjöldum hans og 3 milljarðar eru það sannarlega ekki. Almenn launaþróun í landinu er eitthvað sem við getum vel rætt hérna en það eru ekki þessir 3 milljarðar, eða nákvæmlega hver sú upphæð er, sem mun setja ríkissjóð á kúpuna.