tenging bóta almannatrygginga við launavísitölu.
Frú forseti. Hér er talað um greiningar. Líkt og ég nefndi þá liggur greiningin á þessu fyrir. Það er gert ráð fyrir þessum kostnaði í fjármálaáætlun, það verður gert ráð fyrir þessu í fjárlögum og þetta er fjármagnað að því leytinu til að það er búið að leita allra leiða núna, eins og sannarlega kemur fram í fjármálaáætlun, til að loka gatinu sem við stóðum frammi fyrir þegar við komum inn í þessa ríkisstjórn, sem gerir það að verkum að hér verða hallalaus fjárlög 2027. Það er gert ráð fyrir kostnaðinum við þetta í fjármálaáætlun. Hann er, eins og ég segi, mig minnir að hann sé í kringum 3 milljarða. Ég vil ekki fullyrða það vegna þess að ég er ekki með tölurnar fyrir framan mig en það er ekkert mál að fá þetta fram og að sjálfsögðu er fjármálaráðuneytið búið að reikna þetta út vegna þess að þetta er það stór kerfislægs stærð, alveg eins og fólksfjölgun og annað sem þarf að taka til greina. Ég vil bara leggja áherslu á að það var í fyrri lögum þessi tenging sem hv. þingmaður réttilega bendir á en því var ekki fylgt. Því var einfaldlega ekki fylgt. Þannig að ef fólk ætlar að kenna sig við þann anda laganna, ég tala nú ekki um þá lagagrein, þá ætti fólk bara að fylkja sér á bak við þessa breytingu.