veiðigjald.
Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 434, sem er mál nr. 351, en um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald nr. 145/ 2018, um breytingar á viðmiðum aflaverðmætis í fimm tegundum nytjastofna sjávar. Þetta frumvarp er eitt af áherslumálum ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins um mótun auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu og réttlát auðlindagjöld.
Markmiðið með þeim breytingum á lögum um veiðigjald sem hér eru lagðar til er að leiðrétta útreikninga á veiðigjaldinu og tryggja að það endurspegli raunverulegt markaðsverð eins og ég vík nánar að hér síðar. Í stuttu máli má segja að íslensk þjóð hafi orðið af umtalsverðum fjármunum undanfarin ár vegna þess að það verð sem lagt hefur verið til grundvallar útreiknings veiðigjalda hefur verið of lágt. Upphæð veiðigjaldsins hefur verið stöðug uppspretta deilna frá því það var lagt á. Meðal þjóðarinnar hefur verið hávært ákall um réttlátari dreifingu á arði af fiskiauðlindinni og á sama tíma hafa talsmenn útgerðarinnar fundið gjaldinu flest til foráttu. Hagsmunirnir eru gríðarlegir, varðstaðan um þá sterk.
Ísland er náttúruauðlindadrifið hagkerfi og við höfum verið þeirrar gæfu aðnjótandi að auðlindir landsins hafa verið nýttar vel; í orkugeiranum, í sjávarútvegi, í ferðaþjónustu. Þar hafa skapast verðmæti sem samfélagið okkar hefur notið góðs af eins og vera ber. En það er ekki sama hvernig auðlindarentunni er skipt. Það hljótum við öll að sjá. Í greinum eins og sjávarútvegi þar sem aðgengi er veitt að takmörkuðum eftirsóttum auðlindum verður til umframhagnaður. Skipting þessa umframhagnaðar milli þjóðarinnar og þeirra sem nýta auðlindina er umfjöllunarefnið hér.
Markaðsvirði fiskveiðikvótans er um 1.200 milljarðar kr. ef litið er til þeirra viðskipta sem hafa átt sér stað með heimildir síðustu ár. Hver er eðlilegur hluti þjóðarinnar af nýtingu auðlindarinnar? Ég get ekki svarað því hér og nú en ég get sagt að það er markmið mitt og markmið ríkisstjórnarinnar að tryggja að miðað við þá reikniformúlu sem notuð er við útreikning veiðigjaldsins verði miðað við markaðsverð en ekki verð sem útgerðin ákveður sjálf í eigin innri viðskiptum. Það er einfaldlega galin nálgun, ekki síst af hálfu þeirra sem hafa bókstaflega það hlutverk að gæta hagsmuna almennings. Það er því með ólíkindum að heyra raddir um að hér sé verið að kollsteypa fiskveiðistjórnarkerfinu þegar stjórnvöld eru einfaldlega loksins að leiðrétta augljósan galla, galla sem hefur legið fyrir lengi, galla sem felur í sér að veiðigjaldið hefur ekki verið reiknað af raunverulegu söluverðmæti. Hvernig datt Alþingi þetta í hug á sínum tíma, að sá sem greiðir gjaldið fái að ákveða upphæðina sem liggur til grundvallar?
Í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða segir að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign íslensku þjóðarinnar. Ákvæðið leggur grunn að því mikilvæga og öfluga fiskveiðistjórnarkerfi sem sjávarútvegur starfar eftir og í því felst m.a. að löggjafinn geti í umboði þjóðarinnar mælt fyrir um reglur um meðferð og nýtingu auðlinda innan þeirra marka sem fullveldisréttur ríkisins heimila. Slíkar reglur eru m.a. til að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar sem mælt er fyrir um í 1. gr. laga um veiðigjald.
Markmið þessa frumvarps, sem ég mæli hér fyrir í dag, er að tryggja að reikna aflaverðmæti í tilteknum nytjastofnum endurspegli betur raunverulegt aflaverðmæti og þar með réttlátari auðlindagjöld fyrir aðgang að sjávarauðlindinni og að þau auðlindagjöld séu sannarlega sýnileg hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar. Einnig er frumvarpinu ætlað að mæta betur þeim tilgangi að veiðigjald standi undir kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu. Eins og fjallað er um í greinargerð með frumvarpinu þá hafa veiðigjöld síðustu ár ekki staðið undir þeim kostnaði.
Frú forseti. Áður en ég rek efni frumvarpsins þá langar mig að víkja nokkrum orðum að þeirri umræðu sem hefur skapast um veiðigjöld á fyrri árum. Þrátt fyrir að yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar styðji þetta mikilvæga réttlætismál og styðji þessa leiðréttingu þá hafa líka verið háværar raddir sem finna henni allt til foráttu og mála upp mjög svarta mynd af afleiðingunum. Það er skiljanlegt að umræðan sé heit. Það eru miklir hagsmunir í húfi á alla kanta. En varðandi gagnrýnina virðist gleymast að undanfarinn rúman áratug, frá árinu 2012, höfum við verið með veiðigjald sem hefur verið með ýmsum hætti, sveiflast upp, sveiflast niður og raunar oft farið upp í svipaðar hæðir og verið er að tala um núna án þess að neikvæð áhrif á þróun íslensks sjávarútvegs hafi orðið af því.
Mig langar að fara aðeins aftar í tíma, ekki þó til upphafs kvótakerfisins fyrir rúmlega 40 árum síðan, ekki heldur til þess að framsalið var leyft eða til annarra stórra breytinga. Mig langar til að rifja hér upp að í kjölfar bankahrunsins árið 2008 var staða íslensks sjávarútvegs grafalvarleg og atvinnugreinin skuldaði föllnu bönkunum um 560 milljarða kr. á þávirði. Eiginfjárstaðan var neikvæð um tugi milljarða. Stjórnvöld gripu inn í, aðstoðuðu útgerðina og skipuðu jafnframt sérstaka sáttanefnd um sjávarútveginn en hlutverk hennar var að endurskoða ýmis ákvæði í fiskveiðistjórnarkerfinu og stuðla að sátt um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar. Í kjölfarið, árið 2012, voru sett á þessi auðlindagjöld sem í daglegu tali hafa verið kölluð veiðigjöld og ég geri ráð fyrir því að við munum flest þau miklu átök sem áttu sér stað í kjölfarið. Allar götur síðan hefur verið tekist á um útfærsluna og veiðigjaldið ýmist hækkað eða lækkað með tilteknum breytingum stjórnvalda á lögum um veiðigjald. Í síðustu fjármálaáætlun ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, eða ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna eins og hún var sennilega orðin þá, sem var samþykkt hér á Alþingi í júní á síðasta ári var mælt fyrir um endurskoðun laga um veiðigjald til að tryggja auknar tekjur ríkissjóðs. Í framhaldinu voru lögð fram drög að frumvarpi sem gerði ráð fyrir hækkun veiðigjalds á uppsjávartegundir, umtalsverða hækkun, og gerði jafnframt ráð fyrir því að felld yrði brott heimild til að telja veiðigjald til rekstrarkostnaðar og frádráttarbært frá tekjuskatti. Þetta mál var unnið án greiningar að því er best verður séð, svo því sé til haga haldið. En þetta mál kom aldrei til kasta þingsins síðasta haust af ákveðnum ástæðum.
Í því frumvarpi sem ég mæli hér fyrir er hins vegar farin önnur leið. Það er lögð til önnur aðferðafræði sem felur í sér að veiðigjaldið verður áfram 33% af reiknistofni en við útreikning reiknistofnsins verður litið til annarra viðmiða í aflaverðmæti í tilteknum tegundum sem eru síld, kolmunni, makríll, þorskur og ýsa. Þá verður veiðigjald áfram frádráttarbært frá tekjuskatti.
Frú forseti. Þessar breytingar eru í raun frekar einfaldar. Þær snúast um að framfylgja núgildandi reglu um útreikning veiðigjalds á réttan hátt. Þegar þeir sem mótfallnir eru þessari leiðréttingu og tala mikið og hátt um óhóflegt flækjustig og tína til þætti sem varða þessa leiðréttingu í raun ekki neitt þá dettur mér helst í hug að markmiðið sé að breiða yfir hversu einfalt það er í raun að bæta hag þjóðarinnar hér.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 5. gr. laga um veiðigjald sem fjalla um útreikning reiknistofns að baki veiðigjaldinu. Lagt er til að felld verði á brott lækkun á skráðu aflaverðmæti frysts afla sem nemur í dag 10% þar sem það endurspeglar ekki raunverulegt aflaverðmæti þar sem um fullunna vöru við löndun er að ræða. Jafnframt er lagt til að fella á brott 10% álag á uppsjávarfisktegundir. Þess í stað er lagt til að viðmið um aflaverðmæti uppsjávarfisktegunda, þ.e. norsk-íslenskrar síldar, annarrar síldar, kolmunna og makríls, verði breytt. Viðskipti með afla þeirra tegunda fara nánast eingöngu fram í gegnum beina sölu hér á landi, þ.e. milli skyldra aðila. Vísbendingar eru um að verðmyndun í slíkum viðskiptum hér á landi gefi ekki rétta mynd af raunverulegu markaðsvirði. Var því við undirbúning þessa frumvarps unnin norsk greining um verðmyndun á Íslandi samanborið við Noreg, en Noregur varð fyrir valinu þar sem öll viðskipti með afla umræddra tegunda fara þar fram á opnum markaði. Greiningin leiddi í ljós að verð á markaði í Noregi er í mörgum tilfellum töluvert hærra en verð í beinni sölu á Íslandi. Afgerandi vísbendingar eru því um að verðmyndun á Íslandi endurspegli ekki raunverulegt aflaverðmæti þessara nytjastofna. Þá má hafa í huga að þegar erlend skip, m.a. norsk, landa sínum afla á Íslandi er iðulega greitt hærra verð fyrir þeirra afla en þann afla sem landað er af íslenskum skipum í sömu höfnum á sama tíma. Það bendir einnig á að frávik séu í verðlagningunni.
Þá eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á aflaverðmæti þorsks og ýsu í reiknistofni veiðigjalds. Með sama hætti og með áðurnefndar tegundir uppsjávarfisks þá fer stór hluti viðskipta með afla þorsks og ýsu fram í beinni sölu skyldra aðila. Töluverður munur er á verði í slíkri sölu og því verði sem fæst á opnum markaði fyrir sambærilegan afla. Nægileg viðskipti eru þó með þorsk og ýsu á fiskmörkuðum hér á landi sem ætla má að gefi rétta mynd af aflaverðmæti umræddra tegunda og er því í frumvarpinu lagt til að aflaverðmæti í þorski og ýsu við útreikning reiknistofn miðist við verð á fiskmarkaði.
Með framangreindum breytingum er áætlað að tekjur af veiðigjaldi í uppsjávarfisk tegundum muni hækka um 3–4 milljarða kr. árlega og veiðigjald á þorsk og ýsu hækka um 5–6 milljarða kr. árlega ef miðað er við óbreytt aflamagn. Áætlað er í greinargerð frumvarpsins að með þeim breytingum sem frumvarpið boðar verði álagt veiðigjald um 9,5 milljarðar kr.
Eins og nánar er fjallað um í greinargerð frumvarpsins koma breytingarnar mismunandi niður á greiðendum veiðigjalds og var sérstaklega unnin fyrir atvinnuvegaráðuneytið, greining á áhrifum hækkunar á tiltekna útgerðarflokka. Niðurstaða þess var að hækkunin hefur einna mest áhrif á botnfiskútgerðir sem ekki reka vinnslu og á litlar og meðalstórar útgerðir. Til að bregðast við þeim áhrifum eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á frítekjumarki miðað við 6. gr. laga um veiðigjald. Þannig er lagt til að frítekjumark nemi 40% af fyrstu 9 millj. kr. álagningu veiðigjalds hvers árs í öllum tegundum nema þorsks og ýsu. Lagt er til að frítekjumark fyrir þorsk og ýsu nemi 40% af fyrstu 50 millj. kr. álagningar veiðigjalds hvers árs. Þá er lagt til að framangreindar fjárhæðir taki breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs til verðtryggingar frá janúar 2025. Með þessu er áætlað að frítekjumark verði um 2,1 milljarður kr. á árinu 2026 en muni nema 2,4 milljörðum kr. árið 2030. Til samanburðar má geta þess að frítekjumarkið var um 500 millj. kr. árið 2023. Að teknu tilliti til frítekjumarksins má ætla að áætlað veiðigjald verði um 17,3 milljarðar kr. á árinu 2026. Áætlanir um veiðigjald eru þó háðar mikilli óvissu um aflaverðmæti, kostnað, ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um leyfilegan heildarafla og eins hefur það áhrif á áætlunina að ekki liggur fyrir afkomu greinarinnar á síðasta ári. Hér má þó nefna að EBITDA-framlegð sjávarútvegs samkvæmt gögnum Hagstofunnar var 110 milljarðar kr. árið 2023 og nam eigið fé sjávarútvegsfyrirtækja í lok þess árs 505 milljörðum.
Gert er ráð fyrir að frumvarpið, verði það að lögum, öðlist gildi 1. nóvember á þessu ári þannig að þær breytingar sem mælt er fyrir um í frumvarpinu komi til framkvæmda á árinu 2026 og tillaga ríkisskattstjóra um fjárhæð veiðigjalds muni liggja fyrir 1. desember á þessu ári.
Frú forseti. Drög frumvarpsins voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 25. mars síðastliðinn og bárust rúmlega 100 umsagnir um drögin þar sem fram komu ólík sjónarmið og ábendingar um hvað betur mætti fara að mati umsagnaraðila. Fjölmargir umsagnaraðilar fögnuðu frumvarpinu og töldu að efni þess væri skref í rétta átt til að tryggja sanngjarnt gjald fyrir nýtingu sjávarauðlindarinnar. Þá var einnig vísað til þess að mikilvægt væri að veiðigjald standi undir rannsóknum og vöktun á hafinu sem og til uppbyggingar fyrir samfélagið í heild sinni. Helstu athugasemdir sneru að áhrifamati frumvarpsins, svo sem áhrifum á sveitarfélög, fjárfestingargetu útgerðarinnar og samkeppni og áhrif á litlar og meðalstórar útgerðir.
Í greinargerð frumvarpsins, sem telur 32 blaðsíður, er ítarlega fjallað um áhrif frumvarpsins sem og þær athugasemdir og ábendingar sem bárust í samráðsferlinu en frumvarpið tók nokkrum breytingum að samráðsferli loknu og ég fór hér yfir þær helstu varðandi hækkun á frítekjumarkinu. Þá gætti einnig misskilnings um þá aðferðafræði sem boðuð er í frumvarpinu og hefur orðið tilefni til mikillar og afvegaleiddrar umræðu um efni þess. Ítarlegar er fjallað um aðferðafræðina í því frumvarpi sem lagt er fram hér í dag. Það er ástæða til að þakka fyrir allar þær góðu umsagnir og ábendingar sem bárust við vinnslu frumvarpsins. Að öðru leyti vil ég vísa til greinargerðar þeirra sem fylgir frumvarpinu þar sem farið er yfir þessi efni.
Ég nefndi hér í upphafi máls míns að við Íslendingar höfum verið þeirrar gæfu aðnjótandi að auðlindir landsins hafa verið nýttar vel, þar með talið í sjávarútvegi. Án þess að ég vilji taka nokkuð af því færa rekstrarfólki sem þar hefur staðið í brúnni skiptir þar höfuðmáli sú umgjörð sem stjórnvöld hafa búið þessari mikilvægu atvinnugrein okkar. En eitt er kvótakerfi með frjálsu framsali kvóta og almennt hagfelld lagaleg umgjörð. Annað er hvernig auðlindarentunni er skipt um umframhagnaði sem myndast við afnot af takmarkaðri eftirsóttri auðlind og hefur numið tugum milljarða á ári undanfarin ár. Um þessa spurningu hafa átökin varðandi kvótakerfið ekki síst snúist. Þau eru einfaldlega birtingarmynd óánægju með misskiptingu auðs í samfélaginu í kringum sjávarútveginn.
Mikil umræða hefur skapast um veiðigjöld síðustu vikur og mánuði eftir að ljóst varð að ríkisstjórnin myndi gera alvöru úr þeirri fyrirætlan að leiðrétta og auka þá upphæð sem rennur til þjóðarinnar af auðlindarentu í sjávarútvegi. Margir hafa kallað eftir annarri aðferð við að finna út raunverulegt verðmæti nýtingarréttarins af auðlindinni, aðra aðferð en álagningu veiðigjalda. Frá stofnun Viðreisnar árið 2016 hefur það t.d. verið stefna flokksins að tryggja að sanngjarnt verð sé greitt fyrir aðgang að auðlindum þjóðarinnar og að samningar um auðlindanýtingu séu tímabundnir. Þessum markmiðum hefðum við viljað ná fram með því að afskrifa lítinn hluta af fiskveiðikvótanum á hverju ári og bjóða til kaups sem nýtingarsamninga til einhverra áratuga til að fá fram markaðsverð sem ræðst af framboði og eftirspurn innan greinarinnar. Ríkisstjórnin, við öll í ríkisstjórninni, ákváðum að fara aðra leið til að tryggja sanngjarnt verð fyrir nýtingarréttinn, fara þá einföldu leið sem er að finna í þessu frumvarpi.
Frú forseti. Það er eindregin og skýr stefna ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins að sú viðbótarfjárhæð sem leiðrétting á veiðigjaldinu felur í sér renni til uppbyggingar innviða í byggðum landsins. Vanfjármagnað vegaviðhald, vanfjármagnaðar nýframkvæmdir til viðbótar við flutningskerfi raforku sem slekkur ljósin reglulega — þetta er hinn raunverulegi landsbyggðarskattur. Hér er stigið mikilvægt skref í átt að því að tryggja eðlilega hlutdeild auðlindarentu í sjávarútvegi í innviðauppbyggingu okkar. Ég stend hér og er stolt af því að vera fulltrúi Viðreisnar, flokks sem hefur frá stofnun lagt áherslu á að þjóðin fái sanngjarna hlutdeild af arði í fiskveiðiauðlindinni. Ekki síður er ég stolt af því að tilheyra ríkisstjórn sem stendur einhuga með þjóðinni í því að leiðrétta hlut hennar í veiðigjaldinu.
Ég hef lokið máli mínu, frú forseti, og ég hlakka til þess að fylgjast með og taka eftir efnum og ástæðum þátt í þeirri umræðu sem ég trúi og bind vonir við að verði málefnaleg hér í þingsal. Að lokinni þeirri umræðu óska ég eftir því að frumvarpinu verði vísað til 2. umræðu og til hv. atvinnuveganefndar.