veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna. Það er búinn að vera spenningur eftir því að fá að ræða þetta mál hér í þingsal. Það eru nokkur atriði sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í er varða m.a. þessa miklu áherslu á að horfa til Noregs hvað varðar undirliggjandi verðmætamat og annað slíkt. En þá þurfum við auðvitað nauðsynlega að horfa til þess með hvaða hætti hlutir atvikast í Noregi.
Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra í fyrsta lagi hvort hún eigi skýringar á því hvers vegna svona miklu hærra hlutfall afla er flutt óunnið til annarra landa í Noregi heldur en hér á Íslandi.
Telur hæstv. ráðherra að þessi tillaga að breytingu sem hér er fram komin og hækkar hlutfall afkomu, tekna af hverju veiddu tonni sem fer til skips, og þá frá vinnslu — telur hæstv. ráðherra að þessi breyting hafi áhrif á innlendar vinnslur?
Og í þriðja lagi: Telur hæstv. ráðherra að þær umsagnir sem fram hafa komið frá sveitarfélögum landsins séu gegnumgangandi byggðar á misskilningi? Vegna þess að það segir hér í frumvarpsdrögunum, með leyfi forseta — það er svona smá húmor í stjórnarliðum enn þá:
„Skiptar skoðanir voru um efni frumvarpsins en meiri hluti umsagna var þó jákvæður gagnvart þeim tillögum sem kynntar voru í drögunum.“
Staðreyndin er auðvitað sú, af því að nú er ég búinn að skoða allar umsagnir sem bárust í samráðsgátt, að efnislegu umsagnirnar eru að meginhluta til á sömu bókina lærðar og það er ekki hvatning til að ráðherra gangi fram með þeim hætti sem hér er gert heldur þvert á móti varnaðarorð og varúð alltumlykjandi.
En ég spyr sem sagt hæstv. ráðherra þessara þriggja spurninga hér í fyrri komu minni hingað og óska eftir því að hún upplýsi um afstöðu sína til þeirra.