veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið. Ég ætla nú kannski að byrja á því að leiðrétta það ef hv. þingmaður hefur verið að tala um að allur fiskur sé fluttur óunninn úr landi í Noregi. Það er botnfiskurinn (Gripið fram í.) og það hefur auðvitað að gera með ólíka uppsetningu. Það er kveðið á um aðskilnað veiða og vinnslu þar. Það er ekki svo á Íslandi. Og það er fleira sem er ólíkt með þessum kerfum, t.d. það skipulag sem stjórnsýslan hefur búið til í kringum sjávarútveginn hér á landi með frjálsu framsali, leigu aflaheimilda og öðrum breytingum sem gera hagræðinguna einfaldari.
Lykilatriðið er kannski það að við erum að bera saman verð á sambærilegum fiski, sama fiski sem fer til sömu kaupenda, og við sjáum að afurðaverðið er slíkt að það er ekkert sem réttlætir þennan mun sem er á því verði sem verður til í innri viðskiptum þessara lóðrétt samþættu fyrirtækja hér og þeirra sem fara á markað í Noregi. Það er mergurinn málsins.
Síðan þegar verið er að tala um áhrifin á vinnslur: Nei, vinnslurnar á Íslandi eru arðbærar. Það að við séum að leiðrétta verðið sem nýtt er til útflutnings á stofni veiðigjalds hefur ekkert að gera með það hvort útgerðin, sem rekur hér bæði veiðar og vinnslu, geti haldið áfram að verðleggja fiskinn inn til eigin vinnsla á lægra verði en markaðsverði. Það hefur ekkert að gera með það. Það hefur bara að gera með það að það verð mun ekki lengur ráða (Forseti hringir.) álagningu veiðigjalds.
Og varðandi umsagnirnar: Ég ætlaði ekkert að vera fyndin með því að segja að meiri hluti umsagna hafi verið jákvæður. (Forseti hringir.) Ég er einfaldlega þeirrar skoðunar að þetta mál sé af þeirri stærðargráðu að ég vil bera virðingu fyrir skoðunum almennings.