156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:08]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég er ekki viss um að mér takist það á einni mínútu þegar um er að ræða hv. þingmann sem telur að hér sé verið að taka upp einhverja norska leið, vegna þess að það er svo galin nálgun að ég á bara erfitt með að trúa því að hv. þingmaður telji það. Þetta hefur ekkert að gera með samanburð á kerfum. Það er grundvallarmunur á því hvernig þessi kerfi hafa byggst upp. Stjórnkerfið á Íslandi hefur búið svo um hnútana að hér myndast auðlindarenta. Það hefur ekki gerst í Noregi. En fiskurinn er sá sami, markaðsverðið er það sama, kaupandinn er sá sami. Um það snýst þetta einfaldlega. Makríllinn, það er alveg rétt, það getur verið mismunandi verð á makríl vegna þess að við veiðum hann einfaldlega í mjög stuttan tíma. Við veiðum hann í júlí, við veiðum hann í ágúst en Norðmenn veiða hann lengra inn í haustið. Þá er hann feitari og verðmeiri. Nákvæmlega af þeirri ástæðu notum við bara júlí og ágúst til að bera saman verðið. Þannig var farið í þetta. Þetta er sami fiskur. Hann er seldur á sama verði. Þjóðin á að fá sama verð fyrir. Ég vona að þetta hafi dugað.