veiðigjald.
Virðulegi forseti. Við erum að ræða hér frumvarp sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir land og þjóð og ég held að það sé mikilvægt að það komi fram að við í Framsókn erum öll sammála því að þjóðin njóti arðs af sameiginlegri auðlind. Hins vegar er mikilvægt að það sé gert á sanngjarnan og skynsamlegan hátt og það sé líka gert með upplýstum hætti. En hækkun veiðigjalda sem verið er að leggja til hér getur auðvitað líka haft áhrif á byggðir landsins, útgerð og vinnslu og þrátt fyrir fjölda umsagna og viðvaranir um að frumvarpið gæti veikt rekstrargrundvöll minni og meðalstórra fyrirtækja, sveitarfélaga um land allt þá eru breytingarnar sem voru gerðar lítilvægar. Það er jákvætt að frítekjumörk voru innleidd en það er enn óskýr aðgreining á milli veiða og vinnslu. Enn erum við að leggja gjald á afurðaverð, ekki hráefnisverð og enn skortir hvata til að vinna verðmæti innan lands. Í Noregi greiðir vinnslan ekki fyrir nýtingu auðlinda heldur nýtur hún ívilnana.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvers vegna er ekki gerð skýr aðgreining á milli auðlindagjalda vegna veiða annars vegar og þeirrar verðmætasköpunar sem á sér stað í vinnslu hins vegar þegar ljóst er að núverandi útreikningsaðferð leggur aukna skattbyrði á vinnsluna sjálfa? Telur hæstv. ráðherra að hægt sé að ná sátt um gjaldtöku af sameiginlegri auðlind án þess að greina skýrt á milli veiða og vinnslu? Og hvers vegna var þá ekki tekin upp aðferðafræði sem tryggir slíkt eins og gert er í Noregi?