veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir andsvarið. Það er bara mikill samhljómur með skoðunum mínum og því sem hv. þingmaður segir um að það sé mikilvægt að byggja þetta á sanngirni. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að þessi breyting sé nákvæmlega það, skref í þá átt. Ég vonast til og ég hef væntingar til þess að umræðan hér í þingsal um þetta mál í 1. umræðu og ekki síður vinnslan í nefndinni leiði það í ljós að það sé sanngirni.
Varðandi hins vegar spurningu hv. þingmanns þá er vinnslan ekki takmörkuð auðlind. Vinnslan er samkeppnisrekstur, þannig að það að leggja sérstök auðlindagjald á vinnsluna er kannski ekki af sama toga og hugmyndafræði og sú ákvörðun að leggja auðlindagjald á þá rentu sem myndast við nýtingu við veiðarnar, sem er raunverulega takmörkuð auðlind. Þannig að þetta er aðgreint, veiðigjöldin eru bara af veiðunum en ekki vinnslunni.
En svo það sé áréttað enn og aftur þá er það hvernig lög um veiðigjald, formúlan, eru útfærð og það að við séum að fara þessa leið að leita til Noregs til að finna verðið varðandi uppsjávaraflann af því að þeir fara þar nákvæmlega sömu leið og við — við erum ekkert að horfa til Noregs í botnfiski, þar erum við að horfa á okkar eigin markaðsverð — það hvernig við erum að fara með þetta hefur ekkert að gera með það hvernig hin lóðrétt samþættu fyrirtæki haga sínu samstarfi á milli veiða og vinnslu. Þetta er í þeim skilningi tvennt óskylt. En veiðigjaldið eða auðlindarentan skapast í veiðunum.