156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:13]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Einmitt í Noregi er það þannig að auðlindagjöldin eru hækkuð en á móti koma ívilnanir til vinnslunnar. Það virðist skorta algjörlega hér. Mig langar aðeins að beina sjónum að áhrifunum sem þetta frumvarp mun hafa á tekjur sveitarfélaga og störf á landsbyggðinni því að í fjölmörgum sjávarbyggðum kemur allt að helmingur útsvarstekna beint eða óbeint frá sjávarútvegi eða vinnslu. Þegar fyrirtæki draga saman, fjárfestingar stöðvast jafnvel og vinnslan veikist þá skerðast tekjustofnar sveitarfélaga. Það þýðir að það er minni geta til að fjármagna leikskóla, grunnskóla, félagsþjónustu og aðra innviði og það dregur vissulega líka úr möguleikum byggðarlaga til að halda í fólk og skapa framtíð.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji eðlilegt að leggja fram frumvarp með svo víðtæk áhrif á byggðir landsins og að það sé ekki lögð fram heildstæð byggðagreining og úttekt á áhrifum útsvarstekna sveitarfélaga og þróun atvinnu á landsbyggðinni samhliða. Einnig vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort sú leið hafi verið skoðuð að hækka frekar skatt á arðgreiðslur og söluhagnað í sjávarútvegi (Forseti hringir.) í stað þess að hækka veiðigjald, sem bitnar á starfsemi og fjárfestingargetu, því að við vitum að slíkur arður (Forseti hringir.) kemur í rauninni eftir að verðmætasköpun hefur átt sér stað og skattgreiðslur hafa verið greiddar.