156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:14]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef mögulega misskilið hv. þingmann þegar hún talar um auðlindagjöld í Noregi. Það eru ekki auðlindagjöld í Noregi af því að þar hefur ekki myndast þessi auðlindarenta. Hún hefur myndast í Færeyjum og Grænlandi og þar eru veiðigjöld. Þetta snýst jú í grunninn um það að við erum að búa svo um hnútana að ákveðnir aðilar hafi nýtingarrétt að takmörkuðum auðlindum. Þar af leiðir að þeir mynda umframhagnað. Það er eðli málsins þegar um er að ræða eftirsóttar auðlindir, nýtingarréttinn af þeim. Það er auðlindarentan þar sem við tölum um. Þannig að það eru ekki ívilnanir til vinnslu í Noregi heldur.

Þegar kemur að spurningu hv. þingmanns varðandi greiningar þá fórum við vel ofan í, eins og ég rakti í framsöguræðu minni, allt frá árinu 2012 þær breytingar sem ég held að hver ríkisstjórn, stundum meira að segja oft á kjörtímabili, hafi farið í eða ætlað að fara í. Aldrei fann ég neinar greiningar, sennilega vegna þess að fyrri ríkisstjórnir hafa talið, líkt og ég, að það væri ekki beint orsakasamband. Við erum að leggja fram leið til að tryggja að einn þriðji af auðlindagjaldinu, sem samkvæmt samningum og samkvæmt gildandi lögum um veiðigjöld á að renna til þjóðarinnar, sé byggt á raunverulegu aflaverðmæti. Þetta er auðlindarenta sem eðli málsins samkvæmt hefur ekki afgerandi áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækjanna. Þetta er eðlileg auðlindarenta. (Forseti hringir.) Ég ætla ekki að segja fyrir um það hér og nú hvort einstaka útgerðir bregðist við á einhvern hátt en það er þá ekki vegna þess að þeim er of þröngt skorinn stakkurinn (Forseti hringir.) með þessari leiðréttingu. (Forseti hringir.) Þetta er auðlindarenta sem verið er að skipta á sanngjarnan hátt milli þjóðar og útgerðar.

(Forseti (BHar): Forseti minnir á ræðutímann en hann er ein mínúta í síðari umferð.)