156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:17]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Við ræðum hér mikilvægt frumvarp. Um mánaðamótin mars/apríl var hæstv. fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, í útvarpsviðtali þar sem hann var spurður, varðandi umsagnir sveitarfélaga um málið í samráðsgátt stjórnvalda, hvort það kæmi til greina að breyta málinu. Þá kom skýrt svar: Nei.

Það verður þó að segjast á þessum tímapunkti að það er búið að breyta málinu. Það er að einhverju leyti búið að reyna að koma til móts við sveitarfélögin — ja, ekki kannski sveitarfélögin heldur minni útgerðir og miðlungsútgerðir. Við sjáum tilfærslur þar á milli í frumvarpinu. Það er búið að bæta meiru á stærri aðilana og draga aðeins úr hjá smærri aðilum.

Varðandi allar greiningar í málinu kemur hins vegar í ljós á þessum tímapunkti, eins og þá, skortur á greiningum. Kannski með sama hætti og hv. þm. Ingibjörg Isaksen kom inn á áðan: Varðandi greiningar í tengslum við þetta mál núna þegar það er lagt fram hér, varðandi einstök svæði á landsbyggðunum og hvaða áhrif þetta hefur, þá er þetta gríðarlega stórt inngrip á vissum svæðum. Áhyggjurnar liggja kannski ekki endilega mest hjá stærstu aðilunum, stærstu fimm, sex, sjö fyrirtækjunum. Þær liggja jafnvel meira hjá öðrum, sem eru þar fyrir neðan, niður í þessar tölur sem við erum að miða við og sem við sjáum í frumvarpinu. Þessar greiningar og þessi óvissureið sem er verið að búa til hér og setja þorp og bæi víðs vegar um landið í þessa stöðu, hvað sé að fara að gerast og hvaða áhrif þetta hafi á sveitarfélögin — af hverju er ekki búið að vanda betur til allra greininga og áhrifagreininga, að áhrifamatið sé lagt upp með öflugri hætti í þessu frumvarpi?