156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:22]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Eins og ég sagði áðan hef ég áhyggjur af málinu út frá þeirri óvissureið sem er verið að fara hér í. Hér er verið að rjúfa virðiskeðjuna sem er búið að byggja hér upp áratugum saman. Ég hef áhyggjur af nýsköpuninni, hef áður komið inn á það í þessum sal, þeirri ótrúlegu nýsköpun sem hefur átt sér stað í atvinnugreininni og hefur byggst upp. Og ég hef áhyggjur af, eins og ég kom inn á áðan, þorpunum og bæjunum vítt og breitt um landið. Ég hef sérstakar áhyggjur af mínu kjördæmi í þessu máli, Norðausturkjördæmi. Ég held að Norðausturkjördæmi komi jafnvel verst út í þessu frumvarpi. Það er nú bara þannig, og því höfum við kynnst hér, landsbyggðarþingmenn, að þeir sem eru lengst frá Reykjavík koma oft og tíðum verst út í umfjöllun hér í þinginu og hjá stjórnvöldum. Það er svo þægilegt að fara í þann sem er lengra í burtu. Þetta mál er sprottið upp með þeim hætti. Ég var að spyrja eftir greiningum á landsvæðum. Ég var að spyrja eftir kjördæmum. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir þessa umræðu. Þetta verður (Forseti hringir.) stórt og mikið mál í atvinnuveganefnd og það verður spennandi að takast á við það en það er gríðarlega mikilvægt að hér fari fram mikil og góð efnisleg umræða, (Forseti hringir.) byggð á greiningum, um það sem varðar grundvallarhagsmuni þjóðarinnar í þessu landi.