156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:24]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Hv. þingmaður. Það er ekki verið að rjúfa virðiskeðju. Það er rangt. Og rétt eins og hv. þm. Norðvesturkjördæmis hefur miklar skoðanir á flugvelli hér í Reykjavík þá hef ég kynnt mér málin og hef töluverðar skoðanir á lífsviðurværi fólks úti á landsbyggðinni og ég frábið mér að það sé farin sú leið að þetta sé eitthvað sem eigi að hygla höfuðborgarbúum sérstaklega og að mér sé sama um fólk úti á landi. Við hljótum að geta gert betur í umræðu um þessi mál. Mér er einfaldlega misboðið yfir þessum aðdróttunum. Það er þannig að það er ekki verið að rjúfa virðiskeðjuna. Ég ætla líka að leyfa mér að halda því fram, eins og ég kom reyndar inn á í ræðu minni hér í dag, að útgerðarfólk kunni sinn rekstur. Á aðalfundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sem ég var viðstödd og tók þátt í fyrir einhverjum vikum, kom skýrt fram í máli þeirra sérfræðinga sem töluðu þar að virðisaukinn í sjávarútvegi í náinni framtíð verður í vinnslu, hann verður í vinnslu aukaafurða. Og á að halda því fram að leiðrétting á veiðigjöldum sé að ógna því? Þetta er galið. Þið hljótið að heyra hvað þetta er galin nálgun. (Forseti hringir.) Það kemur málinu ekkert við. Þjóðin á rétt á að fá einn þriðja (Forseti hringir.) af auðlindarentunni og að hún sé reiknuð af raunverulegu aflaverðmæti. Það er útgangspunkturinn. Vinnslan heldur áfram að gera sínu frábæru hluti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn og hæstv. ráðherra aftur á að virða tímamörk og ávarpa forseta í upphafi máls.)