veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir framsöguna. Ég hef nú sagt á fyrri stigum eftir að málið var lagt fram í samráðsgátt að það bæri að mínu mati keim ákveðins skilningsleysis en kannski það sem verra er skeytingarleysis hvað varðar afleidd áhrif frumvarpsins sem við ræðum hér. Ofan á þetta bætist auðvitað samráðsleysið sem er kapítuli út af fyrir sig þegar aðilum var boðin rétt um vika til að gera umsagnir við þetta risavaxna frumvarp sem öllum mátti vera ljóst að væri óraunhæft. Síðan þarf að útskýra sérstaklega hvernig tókst í framhaldinu að draga framlagningu málsins eins og raunin varð. En hér stöndum við í dag.
Breytingarnar sem hér eru lagðar til eru í þá veru að það er sérstakt markmið og sérstök áhersla lögð á, að því er virðist, að tengja mikilvæga þætti íslensks sjávarútvegs, sem er sá sjávarútvegur í heiminum sem hefur tekist að búa til mest verðmæti fyrir sitt samfélag, sem skilar okkur skattspori upp á hartnær 90 milljarða á ári, við það sem gerist í Noregi, þar sem er gjörólíkt kerfi. Það hefur bara ekki gengið neitt sérstaklega vel í sjávarútvegi í Noregi. Það eru þessi afleiddu áhrif regluverksins sem orsaka þetta. Í Noregi hafa menn farið þá leið að skilja að veiðar og vinnslu. Meginþátturinn í þeirri miklu verðmætasköpun sem á sér stað hér á Íslandi er einmitt samþættingin. Það sem skín í gegn er að verðlagning í Noregi er á allt öðrum grundvelli en hérna. Við munum ekki skipta hverjum hundraðkalli upp í fleiri krónur en hundrað. Ef við ætlum að hverfa frá því sem hefur grundvallað skiptingu verðmæta, en verð hefur grundvallast á Verðlagsstofu skiptaverðs, kjarasamningum og ákvæðum tekjuskattslaga um milliverðlagningu, þá verðum við að spyrja okkur: Og hvað svo? Það sem gerist, afleiddu áhrifin af þessu eru auðvitað þau að vinnslan verður óhagkvæmari hér á Íslandi. Það getur ekkert annað gerst ef við ætlum að hliðra þessu jafnvægi.
Hér er talað um leiðréttingu. Leiðrétting er alla jafna — ég held að það sé bara almennur málskilningur annars vegar en við getum líka bara spurt Árnastofnun hvað leiðrétting er. Í fyrirspurnatíma hér áðan kom fram að hæstv. ráðherra treysti sér ekki til að taka neina afstöðu til þess hvort uppgjör þessara veiðigjalda hefur á fyrri stigum verið andstætt gildandi rétti. Auðvitað er það ekki. Uppgjör veiðigjalda er bara á grundvelli þeirra reglna sem við hér í þinginu höfum sett og það er ekkert sem þarf að leiðrétta. Menn geta tekið ákvarðanir í þessu máli eins og öðru um skattahækkanir því það er ekkert annað sem er í gangi hér en skattahækkun og það er meira að segja sagt beinlínis í frumvarpsdrögunum að það sé ágreiningslaust að veiðigjöldin séu skattur, ágreiningslaust. Svo þurfum við að eiga hér í samtali við stjórnarliða sem segja að þetta sé bara alls ekki skattur. Þetta er auðvitað ekki boðleg umræða að þurfa að taka.
Það sem skiptir mestu máli, sérstaklega fyrir okkur sem erum hér dagana langa að reyna að ráðstafa þeim skatttekjum sem koma í ríkissjóð með skynsamlegum hætti, er heildarskattsporið, heildartekjurnar af þeim arðbæra atvinnuvegi sem sjávarútvegurinn er. Það sem skiptir okkur mestu máli er að heildartekjurnar séu sem mestar. Mig rak í rogastans þegar hæstv. fjármálaráðherra, sem er hagfræðimenntaður og veit sínu viti að flestu leyti til, leyfi ég mér að fullyrða — hann kýs að vísu Viðreisn en það er annað mál — fullyrti hér í pontu að heildarskattspor sjávarútvegsins, heildartekjur ríkissjóðs af sjávarútveginum, muni aukast við þessa aðgerð. Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að heildarskattsporið minnki. Vissulega stækki kökusneiðin sem snýr að veiðigjöldunum en heildarskattsporið minnki. Og það eru nefnilega engin smááhrif sem það hefur. Bæði hefur það bein áhrif á þær skatttekjur sem skila sér í ríkissjóð en afleiddu áhrifin sem þetta hefur á fjárfestingu, nýsköpun og þróun í þessu umhverfi öllu eru ekki minna mikilvæg. Þar erum við algerlega í broddi fylkingar í heiminum. Ég fullyrði að það er engin þjóð sem hefur náð viðlíka árangri í þróun tæknilausna, hátæknilausna, er varða sjávarútveginn og Ísland. Þetta gerist af því að fyrirtækin í geiranum eru í færum til að fjárfesta og þróa nýjar lausnir. Þessu er stefnt í hættu með því frumvarpi sem hér liggur fyrir.
Það sem ég er hræddur um að hafi mest áhrif þegar til lengri tíma er litið, og þessi áhrif koma ekki fram alveg strax en þau byrja svona að mjatlast inn í kerfið og verða síðan öllum ljós, því miður of seint, eru áhrifin af því að slíta í sundur virðiskeðjuna. Það skiptir engu máli þótt hæstv. ráðherra sé þeirrar skoðunar að þetta sé einhver hótun þeirra sem standa í þessum rekstri, að þarna verði mögulega breyting á verði rekstrarskilyrðunum gjörbreytt. Þetta eru bara raunheimar. Fyrirtæki og heimili aðlaga sig að því umhverfi sem löggjafinn býr þeim. Það berast af því fréttir að það hefur orðið töluverð eignatilfærsla á strandveiðibátum undanfarna daga og vikur þar sem keppikeflið var að komast fram hjá 51% reglu hæstv. ráðherra. Menn aðlaga sig því regluverki sem þeim er búið og þannig munum við sjá, því miður er ég hræddur um, miklu veikari vinnslu þar sem menn munu jafnt og þétt heltast úr lestinni og sem mun hafa í för með sér mjög aukinn útflutning á óunnum afla til landa með lægri laun. Þetta eru viðvörunarorð sem hafa komið úr öllum áttum síðan frumvarpsdrögin voru lögð fram en ná ekki í gegn. Ég er hræddur um að þetta valdi miklum skaða þegar upp verður staðið.
Ég hef stundum velt fyrir mér hvað orsaki þessa heiftúðugu nálgun á þessi mál. Því hefur verið skotið að manni að þetta sé í einhverjum ranni öfund eða einhverjar aðrar kenndir, ég ætla ekkert að gera með það. En ef við bara skoðum tölurnar þá liggur alveg fyrir að arðsemin í sjávarútvegi er ekkert úr takti við það sem gerist í öðrum atvinnugreinum. Ef við skoðum arðgreiðslurnar í sjávarútvegi, sem virðast fara fyrir brjóstið á býsna mörgum en eru auðvitað lykilþáttur í gangverki kapítalismans svo hægt sé að fjárfesta hér, m.a. í nýjum greinum og ýta undir þær og vöruþróun og þess háttar, þá eru þær, þegar tölurnar eru skoðaðar, bara ekkert hærri og meira að segja lægri en í mörgum öðrum greinum atvinnulífsins. Hvers vegna er til komin þessi harða afstaða gegn góðum árangri sem þarna hefur náðst? Hæstv. ráðherra talaði um það í Kastljósi, minnir mig að það hafi verið, að greinin malaði gull og væri því í meiri færum til að leggja meira til sameiginlegs reksturs samfélagsins. Við eigum auðvitað að fagna því að fyrirtækjum gangi vel en tölurnar segja bara að útgerðin malar ekkert meira gull heldur en t.d. matvöruverslanirnar. Þetta eru bara tölur sem liggja fyrir. Við eigum að tala um hlutina eins og þeir eru.
Tíminn hleypur frá manni en mig langar hér aðeins að verja nokkrum orðum í afleiddu áhrifin á litlu og millistóru útgerðirnar, þó að aðeins hafi verið hnikað til á milli þess plaggs sem lagt var fram sem drög í samráðsgátt og þess sem liggur nú fyrir sem frumvarp. Það eru gerðar eilitlar breytingar á svokölluðu frítekjumarki. En miðað við það sem ég hef heyrt í litlum og millistórum útgerðum síðan málið var birt á miðvikudagskvöld er það bitamunur en ekki fjár, því miður. Það mun ýta undir samþjöppun. Það er þá bara fínt ef það liggur fyrir að markmið ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sé aukin samþjöppun í sjávarútvegi. Það er ekki það sem þau segja en það er afleiðingin af því sem þau gera, afleiðingin af því sem þau leggja hér til. Við skulum bara með galopin augun horfast í augu við það. Litlu og millistóru útgerðirnar hafa miklu meiri áhyggjur af þessu máli heldur en stóru útgerðirnar. Það er bara staðreynd. Félög sem eru samþætt með veiðar og vinnslu sjá fyrir sér gjörbreytt fyrirkomulag, rekstrarleg skilyrði og þar fram eftir götunum. Afleiddu áhrifin á vinnsluna verða því miður þau að hún mun veikjast, hærra hlutfall afla verður flutt óunnið úr landi og þá skiptir engu máli þó að hæstv. ráðherra líti svo á að það sé einhver hótun vondra fyrirtækjaeigenda. Fyrirtæki, fyrirtækjaeigendur, heimili — allir aðlaga sig að því regluverki sem þeim er búið.
Síðan er ekki hægt annað en að nefna áhyggjur sveitarfélaga en hæstv. ráðherra kom ekki inn á það í svari við fyrirspurn fyrr í dag. Það segir hér, væntanlega í einhverri kerskni, að meiri hluti umsagna í samráðsgátt hafi verið jákvæður. Nú er ég búinn að glugga í þær allar og þær umsagnir sem hafa svona efnislega burði í sér eru meira og minna allar á sömu bókina lærðar. Það er bara þannig. Tónninn sem berst frá sveitarfélögunum er með þeim hætti að við verðum að staldra við. Þetta er ekki allt bara byggt á misskilningi, þessar áhyggjur sem þar er lýst, bara alls ekki. Það blasir við að áhrifin á sveitarfélög verða umtalsverð, sérstaklega hjá þeim sveitarfélögum sem mesta hagsmuni hafa af útsvarstekjum og rekstri er varðar sjávarútveg. Það er bara fast í hendi. Við sjáum bara tölur um skráð félög og þróun verðmæta þeirra undanfarið. Þau hafa farið umtalsvert meira niður heldur en markaðurinn. Það er auðvitað af því að hér er ýtt undir óvissuna, ýtt undir hrakyrðin í garð útgerðarinnar sem þó er að skila okkur í sameiginlegar tekjur með beinum hætti rétt um 90 milljörðum á ári. Það er enginn bragur á því.
Síðan er sérstakur hluti umsagna í samráðsgátt sem varðar nýsköpunarfyrirtæki. Ef það er ekki skilningur á því — og mér þykir leitt að hæstv. ráðherra nýsköpunarmála er ekki hér í salnum af því að þetta mál varðar að miklu leyti nýsköpun og þróun. Sjáum bara þau fyrirtæki sem mörg hver eru öflugustu fyrirtæki landsins. Þau eru sprottin úr þessu umhverfi þar sem er svigrúm til að fjárfesta og setja pening í vöruþróun. Ef frumvarpið eins og það liggur fyrir er skoðað til samræmis við það sem birt var í samráðsgátt má sjá að í engu er brugðist við áhyggjum þessara aðila sem sjá má í umsögnum þeirra. Þetta eru aðilar sem eru nú þegar byrjaðir að fá skilaboð um að fjárfestingarverkefnum og þróunarverkefnum sé frestað. Það eru afleiddu áhrifin af þessu sem munu verða okkur svo dýrkeypt.
Ég held að fyrsta skrefið sem yrði mögulega það eina að betur skoðuðu máli væri að hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórn myndi stíga til baka og segja: Við ætlum að skoða þetta mál fram á haust. Þetta mál er ekki tilbúið. Við áttum okkur á því að hér er ekki verið að leiðrétta neitt. Hér er bara verið að hækka skatta og ekkert smá. Þetta mun hafa gríðarlega mikil afleidd áhrif sem blasa við öllum í dag. Þá verður það ekkert sérstaklega góð útskýring að segja eftir nokkrar vikur: Ja, sjáið þið, það hefur ekkert gerst enn sem komið er, því að áhrifin af þessu eru hægverkandi. Áhrifin á vinnsluna koma fram yfir nokkurra ára tímabil. Áhrifin á fjárfestinguna, vöruþróun og rannsóknir koma reyndar fram strax hjá þeim fyrirtækjum sem ekki fá samningana sem undirbúnir höfðu verið.
Þetta eru allt saman atriði sem hv. atvinnuveganefnd fær í fangið. En ég bara hvet hv. atvinnuveganefnd þar sem ég sit — og nú sé ég að hv. þm. Sigurjón Þórðarson er á leið í andsvar við mig, geri ég ráð fyrir — til að glöggva sig vel á þessu máli, rannsaka það, kalla eftir þeim greiningum sem ekki eru birtar í greinargerðinni. Ef við ætlum að taka jafn vonda ákvörðun og hér er teiknuð upp þá verðum við að gera það með galopin augun.