156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Ég dreg þessa ályktun m.a. af samtölum og skilaboðum og umsögnum þeirra fyrirtækja sem starfa í þessum geira. Ég veit að hæstv. ráðherra hefur glöggvað sig á umsögnum í samráðsgátt og það þarf ekki annað en að lesa umsagnir þar frá aðilum sem tengjast nýsköpun og þróun í sjávarútvegi til að þetta blasi við. Ég er ekki að halda því fram að þessi skattahækkun sem hér er lögð til — engin leiðrétting, það var engin villa, þetta var allt rétt útreiknað, það var bara lögð fram skattahækkun. Ég er ekki að halda því fram að skattahækkun leggi Ísland í eyði. Ég er bara að halda því fram að skattahækkunin sem hér er lögð til muni slökkva á verkefnum sem annars hefðu farið af stað, sem mun verða til þess að heildararðsemi, heildarskattspor sjávarútvegsins, mun minnka. Þetta er bara byggt á samtölum við aðila í greininni og þá er ég ekki að tala um þá sem eru í beinni útgerð heldur þá sem eru að þjónusta útgerðina. Flestir sem standa í rekstri átta sig á, held ég, að þetta eru afleiddu áhrifin sem af þessu hljótast.