156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:45]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka andsvarið. Þannig að þetta hefur hv. þingmaður frá þeim sem vilja allt til vinna til að forðast að þurfa að greiða þessa leiðréttingu. Og það er fínt. Eins og ég hef komið inn á og ítreka hér þá er eðlilegt að þessir hagsmunaaðilar — af því að það eru gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir báða aðila, fyrir þjóðina annars vegar og hins vegar fyrir útgerðarfyrirtækin sem sjá fram á að með þessari breytingu borgi þau eðlilegan hlut af auðlindarentunni. Hv. þingmaður kom inn á að arðsemin í sjávarútvegi væri ekkert meiri en gengur og gerist. Ég veit ekki hvaða tölur hv. þingmaður hefur verið að skoða vegna þess að arðsemin er mun hærri en þekkist í viðskiptahagkerfinu okkar, ekki bara í veiðunum heldur líka í vinnslunni. Við erum að tala um ríflega 20% í veiðunum, við erum að tala um 15–16% í vinnslunni og 10% í viðskiptahagkerfinu okkar almennt ef við tökum fjármálafyrirtækin og tryggingafélögin út. Arðgreiðslur eru síðan allt annar handleggur. En það þekkir hv. þingmaður býsna vel, trúi ég, að fyrirtæki sem eru í fjárfestingaþungum atvinnugreinum verja peningum í fjárfestingar og greiða þar af leiðandi minni arðgreiðslur út (Forseti hringir.) vegna þess að þau færa arðsemina í uppbyggingu innan fyrirtækjanna. Það er því mjög sérstök nálgun að líta til arðgreiðslna einna og sér og segja: Sjáið þið, þetta er ekki arðbær sjávarútvegur. Ég ætla bara að leyfa mér að halda þessari (Forseti hringir.) fullyrðingu fram: Það er rangt. Þessi atvinnugrein malar einfaldlega gull og það er ekkert í þessu frumvarpi, þessari fyrirætlun ríkisstjórnarinnar, sem kemur í veg fyrir að þau (Forseti hringir.) haldi áfram á þeirri braut, sem betur fer.