veiðigjald.
Frú forseti. Hæstv. ráðherra hefur sennilega ekki hlustað nógu vel á ræðu mína en látum það nú — ég hvekkist ekkert við það. Ég var bara í engu að halda því fram að sjávarútvegurinn væri ekki arðsamur og auðvitað er það eðli fjármagnsfrekrar starfsemi að það þarf að fjármagna það sem byggt er upp. Ég held að þetta andsvar hæstv. ráðherra sé (Gripið fram í.) — já, en engu að síður er afstaða ráðherra, sem hér kemur fram, byggð á miklum misskilningi. Tölurnar sem ég vísa til varðandi arðsemi geirans eru bara opinberar tölur frá Hagstofunni. Tölur sem ég vísa til varðandi arðgreiðslur eru bara opinberar tölur sem við getum öll flett upp hér úr sætunum okkar. Við eigum að fagna því að sem flestir geirar atvinnulífsins gangi vel en öll umræða um að hinn og þessi ómögulegi aðilinn mali gull, hún er ekki til þess fallin að ýta undir hófsama, skynsamlega umræðu sem gæti orðið grundvöllur þess að við tökum bestu mögulegu ákvörðun hér í þingsal.