veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu sem hér á sér stað. Stuttur tími núna í andsvörum. En mig langar aðeins til að nefna færslu fyrrverandi hv. þingmanns, Oddnýjar Harðardóttur, sem birt var á Facebook nýverið þar sem hún segir að veiðigjaldið sé að hækka úr 26 kr. í 45 per kíló. Á sama tíma, ef útgerðarmenn sem hafa yfir aflaheimildum að ráða og endurleigja þær frá sér, þá endurleigja þeir þær á fimmhundruðkall. Þá spyr maður sig að því: Hefur útgerðin virkilega ekki getu til að greiða 40 krónurnar á sama tíma og þeir eru að rukka aðra um fimmhundruðkall?