156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:50]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er ekki hagfræðingur en ég upplifði þetta sem hártogun vegna þess að sá sem þarf að leigja kvóta fyrir margfalt hærra verð af einhverjum sem fékk úthlutað kvóta, hann þarf líka að eiga skip. Hann þarf líka að leggja út í kostnað. Það er nákvæmlega sami kostnaður. Þannig að ég skil ekki svona röksemdafærslu. Hv. þingmaður hefur talað í frösum frá því að hann kom hérna upp í pontu. Talar um að vinnsla verði óhagkvæm. Við erum með vinnslur í dag sem þurfa bara að versla á markaði. Þær eru að versla fyrir fleiri hundruð þúsund umfram það sem útgerðin er að selja sjálfri sér. Við getum bara horft suður með sjó eða á Þorlákshöfn eða fleiri staði þar sem eru vinnslur án kvóta. Þær þurfa að borga margfalt hærra verð. Ætli það sé ekki 30–40% hærra verð? Þær eru ekkert að kveinka sér undan því að þurfa að borga þetta verð af því að þær trúa á markaðinn, sem hv. þingmaður virðist ekki gera.