veiðigjald.
Frú forseti. Í þessu fyrra svari mínu fórst fólst engin hártogun heldur bara staðreyndir. Það er þannig, eins og þingmaðurinn bendir réttilega á, að öll fjárfesting er þegar til komin hjá þeim sem leigja til sín viðbótarkílóið. Sá rekstur þarf ekki að leggja neina viðbótarfjárfestingu til að sækja aukakílóið. Það er það sem skýrir þetta. Og síðan, af því að hv. þingmaður talaði hér um gjafakvóta, ég ætlaði nú ekki að nefna það, en það er bara risafyrirtæki í kjördæmi hv. þingmanns sem hefur staðið í góðum rekstri um langt árabil og keypt allan sinn kvóta, allan. Þetta er fyrirtæki sem hv. þingmaður þekkir. En þetta sem snýr að 500 kr. leiguverðinu skýrist af þessu. Það er enginn útúrsnúningur eða hártogun. Ég er bara að reyna að svara spurningu hv. þingmanns.