156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:53]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þm. Bergþór Ólason dregur upp ansi dökka mynd af því sem þetta frumvarp felur í sér. Það felur einfaldlega í sér að skattstofninn miðist við raunverðmæti. Raunverðmæti myndast ekkert hér á Íslandi. Það myndast við það sem erlendir markaðir gefa. Að telja það hér úr ræðustól Alþingis að það muni bara koma í veg fyrir fiskvinnslu á Íslandi, það er af og frá, það er fráleitt. Sama er um að það hafi einhver bein áhrif á vísindastarf og framþróun. Þessi fyrirtæki sem hafa náð góðum árangri, þau eru að vinna á alþjóðlegum mörkuðum. Þannig að þessi mynd sem hér er dregin upp af því sem þetta frumvarp, sem er nauðsynlegt, muni hafa í för með sér, það eru miklar ýkjur og nánast Münchausen-ýkjur sem koma fram hjá stjórnarandstöðunni. Ég skora á stjórnarandstöðuna að koma hér með málefnalegri rök hvað það varðar að fiskvinnsla leggist af í landinu og nýsköpunarstarf. Það verður meira talið upp á næstunni.