veiðigjald.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi Münchausen þá gæti ég nú gert tilraun til að tosa sjálfan mig upp á eigin skeggi en hv. þingmaður ekki. Það að raunverulegt verð verði til í útlöndum, á erlendum markaði — ég skildi afstöðu hv. þingmanns rétt, er það ekki? (Gripið fram í.) Já, takk fyrir. Ég veit og ég er alveg viss um það að íbúar á Sauðárkróki vildu geta selt íbúðina sína á sama verði og í miðborg Óslóar. Það eru bara mismunandi markaðsaðstæður á mismunandi svæðum. Hluti þess að verð á markaði í Noregi er hærra heldur en hér á Íslandi er að sú vara, sá afli sem þannig er keyptur er fluttur til landa með lægri laun til vinnslu. Það er það sem við viljum forðast. Það er það sem við viljum forðast og halda vinnslunni hér heima. Í því samhengi hefur kerfið verið byggt upp þannig að býsna vel gagnast fyrir mikilvægustu hagsmuni okkar landsmanna, sem eru að heildarskattsporið sé sem hæst.