veiðigjald.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni seinna andsvar. Ég held að það séu nær 98% sem seljast á erlendum markaði, sem vekur furðu varðandi annað þingmál sem hæstv. ríkisstjórn reynir að koma hér í gegnum þingið en við eigum eftir að ræða það betur í atvinnuveganefnd sem hv. þingmaður stýrir.
Hv. þingmaður kemur hérna inn á áhyggjur okkar í stjórnarandstöðunni af hinum dreifðu byggðum og samþjöppun. Skal einhvern undra? Auðvitað höfum við áhyggjur af hinum dreifðu byggðum og samþjöppun því að það hittir þannig á að 81% af öllum sjávarútvegi er á landsbyggðinni. Þessi skattahækkun sem hér er lögð til er landsbyggðarskattur og menn eiga bara að gangast við því og segja það þá bara stoltir, ef það er afstaða þeirra, að það þyki bara besta hugmynd sem flotið hefur upp hjá ríkisstjórninni hingað til. Þetta er fyrsta raunverulega pólitíska málið sem hingað kemur inn. Besta málið sem ríkisstjórnin fann upp á sjálf var að leggja á sérstaka skattahækkun gagnvart starfsemi sem er að meginþunga til á landsbyggðinni. Svo eru menn hissa á að við höfum áhyggjur. Samþjöppunin er auðvitað síðan bara mál sem bara blasir við og við heyrum fregnir af nú þegar og við skoðum þróunina sem hefur verið undanfarin ár. Þetta frumvarp eins og það liggur fyrir hér ýtir undir hana.