156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:58]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir sína ræðu. Ég er nú ekki vanur að þekkja hann í svona neikvæðum ham, með slíkan ótta og slíkan bölmóð hér í ræðustól, en þetta lýsir ákveðinni skoðun á þessu frumvarpi. Það var eitt sem ég vildi koma með athugasemd við, sem snýr að því að hægt væri að misskilja ræðu hans sem svo að hann teldi að þetta frumvarp stuðlaði að einhvers konar kerfisbreytingu þegar kemur að veiðigjaldinu, að hér væri verið að rjúfa virðiskeðjuna eða fara einhvers konar norska leið þótt það sé alveg skýrt í frumvarpinu að svo á ekki að vera enda ólík kerfi, líkt og fram kom í ræðu hæstv. ráðherra. Mig langaði í rauninni að gefa hv. þingmanni tækifæri til að bregðast við þessu og taka af allan vafa um að hann sé meðvitaður um að hér sé ekki um kerfisbreytingu að ræða heldur einungis verið að tryggja að rétt verð sé greitt í veiðigjöld.