veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Enn einu sinni kemur að mínu mati fram skilningsleysi á afleiddum áhrifum frumvarpsins. Það þarf enginn að útskýra, held ég, fyrir neinum hér í salnum að kerfið, aflamarkskerfið, er óbreytt en það er þessi nálgun á veiðigjaldið sem er grundvallarbreyting, þessi skattahækkun sem hér er lögð til. Afleiddu áhrifin af frumvarpinu eru í raun kerfisbreyting. Reynist áhyggjur okkar réttmætar og áhyggjur þeirra sem settu umsagnir inn í samráðsgátt þá mun þetta frumvarp ýta af stað kerfisbreytingu er varðar þennan samþætta rekstur þar sem veiðar og vinnsla eru á hendi sama aðila. Það eru áhyggjurnar og við eigum ekki að taka sénsinn á því að það verði raunin. Við eigum að taka okkur rýmri tíma í að greina það og skoða því að eins og ég segi, allar umsagnir frá þeim sem gleggst þekkja til vísa í þá áttina.