156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:01]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er gott að heyra að hv. þingmaður skilur að frumvarpið felur ekki í sér kerfisbreytingu. Það er kannski ágætt að skoða aftur í tímann þegar veiðigjaldið var sett á 2012 og hækkað en þá voru sömu áhyggjuraddir á lofti, að vinnsla myndi leggjast í eyði, að nýsköpun myndi leggjast af og að byggðir landsins myndu leggjast í rúst. Ef við skoðum það tímabil sem hefur verið eftir árið 2012 þá er augljóst að nýsköpun hefur aldrei verið meiri. Hagur sjávarútvegsins hefur aldrei verið betri. Við höfum verið að reisa hér á Íslandi, með nýsköpun að vopni, einhverja fullkomnustu vinnslu í Evrópu síðan veiðigjaldið var tekið upp 2012. Þannig að ég tel að þessar áhyggjur sem hv. þingmaður lýsir hér eigi ekki við rök að styðjast. Og ef við höldum okkur við staðreyndir frumvarpsins þá er ekkert í þessu frumvarpi sem stuðlar að kerfisbreytingu, heldur einfaldlega það að tryggt sé að þjóðin fái réttlátan hlut í veiðigjöldunum líkt og lög um veiðigjöld kveða á um í dag.