156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:02]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Afstaða hv. þingmanns er að mínu mati á misskilningi byggð og ég ætla að reyna að teikna upp einfalda mynd. Í dag eru skiptin nokkurn veginn þannig að 55 kr. af hverjum 100 fara til skipsins og standa þar undir rekstri, launum og því öllu, en 45 kr. fara til vinnslunnar og standa undir því sem þar fer fram. Ef við ætlum að breyta þessu hlutfalli úr 55/45 — eða 60/40, það skiptir ekki öllu máli, segjum bara 55/45 — ef við ætlum að breyta þessu hlutfalli úr þeirri skiptingu í að skipið fái 80 kr. af hverjum 100 þá blasir það bara við, og það þarf enga hagfræðinga til að útskýra það, að þær 20 kr. sem eftir verða munu hafa umtalsverð áhrif á rekstrarskilyrði vinnslanna. Það eru áhyggjurnar sem við erum að lýsa og það er kerfisbreytingin sem mun í raun koma fram verði þetta frumvarp samþykkt, þó að það sé ekki það sem standi í frumvarpinu. Það eru þessi afleiddu áhrif sem mér finnst ríkisstjórnin því miður alltaf gleyma að líta til. Það er nú svo sem ekki breyting frá fyrri ríkisstjórn en þetta er alveg sérstaklega alvarlegt í þessu samhengi, í þessu tiltekna máli.