veiðigjald.
Frú forseti. Það er nú þannig að ef farið er yfir t.d. skýrslur um það hvað teljist opinber stuðningur við sjávarútveg þá eru þessir þættir taldir upp sem ég taldi fram í ræðu minni. Það eru m.a. hafrannsóknir, fiskveiðiráðgjöfin, það er Fiskistofa, það er jafnvel Landhelgisgæslan, veðurþjónusta við sjómenn. Það er bara staðreynd að ef farið er yfir veiðigjöldin eins og þau eru núna þá ná þau ekki fyrir þeirri upphæð sem er kostnaðurinn hjá hinu opinbera núna þannig að við erum að styrkja það. Samkvæmt þessum opinberu þáttum eða opinberu stöðlum þá kostar það meira en sem nemur veiðigjöldunum. Það breytist örlítið við þetta frumvarp. Það er niðurstaðan. En svo það sé sagt hér þá er ég mjög ánægður með hæstv. atvinnuvegaráðherra, ég er mjög ánægður með hennar framgöngu. Það sem hefur komið hér fram og ég var að vísa til í umræðunni hvað varðar strandveiðar þá eru ekki aðrir, þá sérstaklega ekki stjórnarandstaðan hér í þinginu, ánægðir og hafa verið hér að toga og teygja hvaðan strandveiðiaflinn eigi að koma og eru í þeirri umræðu í einhverri regluvörn fyrir hina stóru í staðinn fyrir að gleðjast á þessum degi sem er upphafsdagur strandveiða þar sem útróðrarétturinn er virtur hringinn í kringum landið. En þá eru þingmenn stjórnarandstöðunnar hér miklu frekar í því að reyna að negla þetta niður. Ég spyr: Hver er tilgangurinn með því í staðinn fyrir að ýta undir frelsið og hið jákvæða í íslensku samfélagi?