veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég get upplýst hann um að ég mæti hér mjög glaður til þessara starfa í dag því að ég er búinn að bíða lengi eftir að fá að ræða þetta veiðigjaldamál. En það sem hv. þingmaður vísar hér til varðandi efasemdir um að hæstv. atvinnuvegaráðherra sé með augun á einhvers lags girðingum er varðar strandveiðarnar hefur bara ekkert að gera með neina afstöðu til strandveiðanna. Ég hef fyrst og fremst verið að reyna, og gerði það síðast í fyrirspurnatíma fyrr í dag, að draga fram og glöggva mig á hvernig hæstv. ráðherra ætlar að útfæra þetta. Það komu nú hér tillögur eða upplýsingar og breytt reglugerð í aðdraganda þess að aðilar sóttu um leyfi til strandveiða. Það var ýmislegt, það var nýr tímafrestur, færður framar í tíma. Það var krafa um að aðili á báti ætti a.m.k. 51% í honum eða meiri hluta öllu heldur. Ég velti því bara fyrir mér hvort þessi áhersla hv. þingmanns á að ráðherra ætti að hætta að hafa áhyggjur af þessum girðingum: Þekkir hv. þingmaður til þess að að menn hafi verið að fara fram hjá þessu í aðdraganda þess að sótt var um strandveiðileyfi? Þekkir hv. þingmaður til þess að mikið hafi verið um breytingar á eignarhaldi strandveiðibáta til að ná 51% markinu? Ég er að velta fyrir mér hvers vegna hæstv. ráðherra hefur áhyggjur af þessu og hvers vegna hv. þingmaður gagnrýnir hæstv. ráðherra fyrir að hafa áhyggjur af akkúrat þessu.