veiðigjald.
Frú forseti. Ég er farinn að efast um að hv. þingmaður hafi heyrt ræðu mína áðan því að ég var að hrósa hæstv. ráðherra. Ég er mjög ánægður með hæstv. ráðherra. En ég furða mig í rauninni á Miðflokknum, að hann skuli nota hvert tækifæri til að leggja stein í götu strandveiða. Mér finnst einhvern veginn að ýmsir í kjósendahópi Miðflokksins, ég ímynda mér það, hafi einmitt verið hliðhollir því að að opna hér fyrir veiðar og hafi mikinn skilning á því á meðan helstu þingmenn flokksins eru hér að böðlast um, snúa út úr fyrir þingmönnum og ræðum þeirra og búa til einhverja svona vitleysisumræðu um þetta. Í staðinn fyrir að vera ánægðir og glaðir og óska hæstv. ráðherra til hamingju með daginn þá er verið að búa til vandamál og tína hlutina til. En auðvitað skil ég það að einhverju marki. Þetta mál er auðvitað mjög snúið fyrir stjórnarandstöðuna og hún fer að beina því bara út og suður í einhverja vitleysu eins og hefur verið hérna í dag. Það sem skýrir það er auðvitað þröng staða stjórnarandstöðunnar í þessu máli, að vera að koma hérna í vísindastarf og hvaðeina, það ætti að leggja af fiskvinnslu — þetta er eitthvað sem er auðvitað nánast bara til skammar, vil ég segja, frú forseti, að vera komin í þessa vegferð. En ég held að þetta mál sé virkilega gott og málefnafátækt stjórnarandstöðunnar endurspeglar það að menn fara í þessar torfærur með umræðuna. Auðvitað hef ég skilning á því og geri í sjálfu sér svona — já, ég hef skilning á því.