veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég ætla nú ekki að blanda mér í umræðuna um strandveiðar að þessu sinni í andsvari við hv. þm. Sigurjón Þórðarson, en ég get þó upplýst þingheim um það að ég hef fengið þónokkur skilaboð um að nú séu eftirlitsmenn frá Fiskistofu mættir á kæjana til þess að athuga — það eru þessar girðingar sem um er að ræða — hvort menn séu að fara eftir lögum og reglum um eignarhald á bátum og annað. Þannig að það á að passa upp á allar girðingar á strandveiðunum þetta árið.
En maður var aðeins hugsi þegar maður hlustaði á hv. þm. Sigurjón Þórðarson, minnugur þess að hann hélt hér ræðu þar sem hann skammaðist mikið yfir fjölmiðlum sem höfðu flutt fréttir af vandræðagangi hans eigin flokks og vildi þar með að fjárframlög yrðu lækkuð til viðkomandi fjölmiðla sem þessar fréttir fluttu. Nú hjó ég eftir því í ræðu hv. þingmanns og formanns atvinnuveganefndar að hann var mjög móðgaður yfir þeim auglýsingum sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa verið að keyra hér og á þeirra málflutningi og talaði um það. Ef ég skil rétt þá sagði hv. þingmaður að í rauninni hefðu fyrirtækin bara kvótann til eins árs og það mætti jafnvel skoða að fara bara í það að úthluta kvótanum til eins árs í senn eða í einhvers konar harkalegri aðgerðir gagnvart atvinnugreininni. Mig langar að spyrja hv. þm. Sigurjón Þórðarson og formann atvinnuveganefndar: Hvað átti hv. þingmaður við með þessu?