156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:23]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Nú er ég hvorki móðgaður né reiður. Ég er bara virkilega stoltur yfir þessu frumvarpi og ég segi það að ég skil að vissu leyti stjórnarandstöðuna, að vera að koma með þessa umræðu bara út í móa, bara komnir út í fjölmiðla og hvort ég sé að skipta skapi eða ekki. Ég vil að þeir sem fylgjast með þessari umræðu átti sig á því að ég er bara í þokkalega góðu skapi og í góðu jafnvægi hérna. Það sem ég var að gera var að ég var að minna þá á sem fá veiðiréttinum úthlutað til eins árs í senn að það er ekki alveg sjálfgefið. Þeir eiga auðvitað að vera þakklátir og sýna hér umræðunni sanngirni. Ég tel þegar upp er staðið að þessar auglýsingar hafi ekki endilega skilað þeim miklu sem vilja ekki breyta því að raunverð fái að ráða þegar verið er að ákveða hér skattstofn en ekki eitthvert málamyndaverð. Ég held að það sé kannski niðurstaðan í þessu. Ég var bara einfaldlega að minna á það að ef við fáum þessa umræðu hér jákvæðari hvað varðar stjórn fiskveiða þá eru gríðarleg tækifæri til breytinga. Ég held að við þurfum að ræða það og ekki vera að tala um að þetta sé einhver kúvending. Þetta er góð breyting, hún er skynsamleg og ég held að hún endurspegli mjög sterkt sérhagsmuni og almannahagsmuni.