156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:25]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í ræðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar komu líka fram vangaveltur um Hafrannsóknastofnun, hennar ráðgjöf og hvernig hún hefur í rauninni háttað sinni ráðgjöf varðandi útgáfu á nýjum aflaheimildum á hverju ári. Við höfum borið gæfu til þess að fara eftir vísindalegri nálgun og ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. En það má heyra það á ræðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, formanns atvinnuveganefndar, að hann vilji kannski eitthvað fara að hugsa ráðgjöfina upp á nýtt og útgáfu aflaheimilda eða hvernig þær eru hugsaðar. Gæti hv. þingmaður kannski útskýrt það aðeins betur fyrir þingheimi hvernig hann sér það fyrir sér?