veiðigjald.
Herra forseti. Við erum að ræða hér frumvarp þar sem við erum að gera leiðréttingar á veiðigjöldum og þeirri auðlind sem samfélagið og þjóðin á, auðlind sem er nýtt til hagsbóta. Við viljum gera breytingar þar á til að auka það sem samfélagið fær með sanngjörnum hætti í sinn hlut. Mig langar að spyrja — ég held reyndar að klukkan sé vitlaus hjá mér en ég fagna svo sem tímanum — hv. þm. Jens Garðar Helgason hvort hann sé á móti því að miða veiðigjöld við raunverulegt verðmæti aflans. Er það eitthvað sem hv. þingmaður er á móti?