veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni fyrir hans spurningu. Þetta er nefnilega málið: Hver eru raunveruleg verðmæti aflans? Í Noregi er það þannig að þar eru veiðar og vinnsla skilin að. Vinnslan hefur átt í erfiðleikum í Noregi. Þar er miklu hærra hlutfall af óunnum fiski fluttur til Evrópu, til Póllands. Það er nú kannski draumur sumra stjórnarflokkanna að við látum Evrópusambandið bara byggja fyrir okkur vinnslur í Póllandi þar sem launin eru einn fimmti af því sem þau eru hér. Það er ekki mín draumsýn. Hin raunverulegu verðmæti aflans eru ekki þau eins og koma fram í Noregi þar sem í rauninni öll verðmætin verða eftir bara útgerðarmegin en ekki vinnslumegin.