veiðigjald.
Herra forseti. Það er auðvitað mjög sérkennilegt að hlusta hér á að aflaverðmæti séu allt önnur í löndunum í kringum okkur, að íslensk aflaverðmæti séu minni einhverra hluta vegna sökum þess að aðilar þurfi að vinna með sömu verðmæti en geri það á einhvern annan hátt. Það eru aðilar hér á landi sem þurfa að kaupa af markaði og vinna úr því og þeim ferst það ágætlega. Síðan eru þeir sem, eins og hefur komið fram hérna í dag, eiga kvóta — að eigin mati en sem eiga auðvitað ekkert kvótann, það er þjóðin sem á þessi verðmæti. En þá langar mig að spyrja hv. þm. Jens Garðar Helgason hvort hann sé ósammála því að þjóðin fái gjald fyrir nýtingu auðlinda okkar, þeirra auðlinda sem þjóðin á. Þjóðin á heimtingu á að fá sanngjarnt gjald fyrir þær auðlindir.