veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni fyrir hans seinni spurningu. Finnst mér ósanngjarnt að þjóðin fái gjald? Nei, bara alls ekki. Það var akkúrat það sem kom fram í ræðu minni hér, hvernig við snerum vörn í sókn með deyjandi atvinnugrein fyrir þremur áratugum síðan og erum núna að ræða í rauninni útfærslu á því hvernig auðlindaskatturinn eigi að vera. Það er sú frábæra staða sem við erum í sem þjóð. Það er bara þannig. Auðlindaskatturinn er hér til umræðu af því að við höfum verið með kerfi og við höfum fyrirtæki og atvinnugreinar sem geta staðið undir auðlindaskatti. Þannig að við erum að ræða útfærslu á auðlindaskattinum og í rauninni erum við að ræða það hvort núverandi stjórn, vinstri stjórnin sem nú er við völd, hvort hún sé ekki að ganga allt of langt miðað við þær áhyggjur sem ég benti á í ræðu minni áðan.