veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að taka undir sjónarmið sem komu fram hjá hv. þingmanni, að hann hefði áhyggjur af því að hér væri loðnubrestur ár eftir ár og að þorskaflinn væri að dragast saman, jafnvel um heil 25%. Og þó svo að ég telji kannski ekki að menn eigi bara að láta staðar numið og skoða það ekkert nánar, sérstaklega þegar það er ljóst að vöxtur þorsksins hefur dregist saman — ég held einmitt að þá eigi að skoða hlutina. En hvað sem því líður þá finnst mér umhugsunarvert þegar hér kemur varaformaður flokks, sem boðaði á síðasta kjörtímabili stórfellda hækkun á veiðigjaldi á uppsjávarfiski og án þess að koma með nokkrar greiningar á því, og heimtar hér hverja greininguna á fætur annarri þegar það er ljóst að frumvarpinu fylgir ítarleg greining og það er búið að reikna þetta. Mér finnst að hv. þingmaður ætti að sýna örlítið meiri sanngirni í umræðunni og taka þessu frumvarpi fagnandi því að það er auðvitað með ólíkindum að varaformaður Sjálfstæðisflokksins geri bara ekkert með markaðsverð.