156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:50]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Það væri áhugavert að fá aðeins útlistun á því hvort hann hafni bara markaðslögmálunum þegar verið er að ákveða verðmæti, því að ég tók eftir því að hv. þingmaður, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hljóp alveg yfir þann þáttinn. Ég tel einmitt að markaðurinn eigi að ráða og ég spyr bara: Hvaða leið vilja menn fara aðra í Sjálfstæðisflokknum? Mér finnst það vera umhugsunarefni. En ég vil segja eitt áður en menn fara að setja miklu meiri pening inn í þær rannsóknir sem eru stundaðar núna. Ef við förum í hinn þáttinn á andsvarinu þá tel ég rétt að menn skoði þá einnig að veita aukna fjármuni í það að skoða hlutina upp á nýtt og gera það með gagnrýnum hætti. Ég held að við þurfum að gera það án þess að vera að kenna einhverjum um eða leita að sökudólgum. Við eigum bara að skoða þessa þætti með gagnrýnum hætti því að við erum sammála um það, hv. þingmaður, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og ég, að hér er um gríðarlega hagsmuni að ræða fyrir þjóð og land. Við eigum að skoða þetta með opnum hug.