156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:51]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans seinna andsvar, seinni spurningu. Að við séum að hafna markaðslögmálum, ég skil bara ekki (Gripið fram í.) hvert hv. þingmaður er að fara. Í fyrsta lagi skulum við alveg hafa það á hreinu að í dag er það þannig að við erum með samhangandi virðiskeðju í íslenskum sjávarútvegi. Það er einn af lyklunum að því að við höfum náð þeim árangri sem við höfum náð. Og þar með er það réttur þess sem heldur á aflaheimildum að ákveða hvort hann nýtir afla sinn sjálfur eða setur hann á markað. Svo verður hv. þingmaður líka að átta sig á því að ef allur fiskur færi á markað — heldur hann þá virkilega að sömu verð verði á markaðnum þar sem er verið að byggja á jaðarverðum, að sömu verð verði á markaðnum ef allur afli fer á markað? Og hvað segja íslenskir sjómenn þá?