veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir góða ræðu. Mig langar til að vekja athygli á áhugaverðri tillögu sem hann kom fram með sem varðaði það að yfirvöld í Reykjavík gætu eftir atvikum bara tekið fasteignaverð í Ósló og lagt það til grundvallar fasteignagjöldum hér í Reykjavík. Er það ekki nákvæmlega það sem útgerðin er að gera; hún ákveður sjálf aflaverðmætið? En spurningin er þessi: Hvaða tillögur liggja fyrir hjá Sjálfstæðisflokknum, og eftir atvikum hv. varaformanni, varðandi veiðigjöldin? Getum við hækkað veiðigjöldin eitthvað og ef við getum hækkað þau eitthvað, hvernig eigum við að fara að því?