156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:53]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ekki þannig að menn ákveði það bara með puttann upp í loftið hvernig verð er ákveðið inn í vinnslu. Það er til verðlagsnefnd skiptaverðs sem í sitja fulltrúar sjómanna og útgerða og ríkis þar sem er farið yfir ákveðið meðalverð á markaðnum og verð inn í fiskvinnslur er ákveðið út frá því. Sú nefnd hittist með mjög reglubundnum hætti og ákveður verðið.

Hvernig er hægt að finna betri útfærslu? Í rauninni er það það sem hv. þm. Grímur Grímsson er að spyrja um: Hvernig er hægt að finna betri útfærslu? Það er til betri útfærsla á því hvernig hægt er að vinna með útreikning á veiðigjöldum. En það verður ekki gert að mínu mati með því að fara að miða við verð á uppskipuðum afla í landi hinum megin við Atlantshafið þar sem eru allt aðrar forsendur, allt aðrar markaðsforsendur og allt annað kerfi en við búum við.