veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Auðvitað er það eitthvað sem þarf að halda til haga að það sem kemur frá Verðlagsstofu er ekki markaðsverð. Það er munur á markaðsverði annars vegar og því verði. Það er verið að horfa til þess að verið sé að ákveða veiðigjöld út frá markaðsverði bæði á uppsjávarfiski og botnfiski. Síðan er horft til Noregs varðandi uppsjávarfiskinn.
En ég ætla að spyrja hv. þingmann annarrar spurningar og hún varðar vinnsluna. Ef veiðigjöld verða hækkuð með þessum hætti, eins og boðað er í frumvarpinu, mun það leiða til þess að minna verði um það að fiskur fari í vinnslu, að það verði meira um að hann verði fluttur óunninn úr landi? Og ef svo er, ef það er svar hv. þingmanns, af hverju? Af hverju breytist það? Ég geri ráð fyrir því í þessari spurningu að við séum að auka verðmæti við vinnsluna. Af hverju breytist það við hækkun á veiðigjaldi að við förum að vinna minna í landi?