156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:56]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir hans seinni spurningu. Ég fagna því að hv. þingmaður er í rauninni að opna á ákveðið samtal. Hann er að opna á ákveðið samtal um hvort til sé einhver betri leið. Ég vona svo innilega að í störfum atvinnuveganefndar, þegar hún tekur þetta mál til umræðu, muni hv. þingmenn ríkisstjórnarinnar vera opnir fyrir því og ég heyri ekki annað á hv. þingmanni. En þannig er mál með vexti að ef þú tvöfaldar álögurnar þá getur vel verið að menn þurfi að bregðast við. Ég held að í þessu tilfelli verði það þannig að þeir sem eru með litlar útgerðir og litlar vinnslur þar sem eru jafnvel fjárfestingar fram undan — við verðum að athuga það að ein vatnsskurðarvél kostar 200–400 millj. kr. — að þessar vinnslur eru í mestri hættu. En það mun líklega á lengri tíma koma til hagræðingar hjá stærri útgerðunum.