veiðigjald.
Herra forseti. Mig langar að byrja á að þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir sögulegar skýringar sínar á sjávarútveginum sem hann fór hér yfir í byrjun ræðu sinnar. En vegna athugasemda hans um þekkingu þingmanna á greininni þá vil ég bara benda honum á að sú þekking er bara nokkuð góð hér í salnum. Ég þekki þetta bara ágætlega.
Hv. þm. Jens Garðar Helgason talar um afkomu greinarinnar en við vitum, og það hefur komið fram í gögnum, að veiðigjaldið stendur ekki undir þjónustunni við greinina. Finnst þingmanninum óeðlilegt að greinin, þ.e. sjávarútvegurinn, útgerðin, standi undir kostnaði við þjónustu sem veitt er m.a. af ríkisstofnunum eða á almenningur að standa undir þessum kostnaði með sinni skattheimtu?