156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:58]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er nú bara þannig að veiðigjaldið stendur undir þeirri þjónustu sem er verið að veita atvinnugreininni þannig að það er algerlega verið að fara rangt með hér í ræðustól þegar því er haldið fram að veiðigjaldið standi ekki undir þjónustunni. En við skulum líka athuga að það er t.d. ekki rétt að taka málaflokk eins og Landhelgisgæsluna og setja hann alfarið á útgerðina. Ég hef heyrt því fleygt fram í umræðunni að menn taka bara rekstur Landhelgisgæslunnar og segi að útgerðin eigi að borga alla Landhelgisgæsluna. (Gripið fram í.) — Já, en þessu hefur verið fleygt fram í umræðunni, sem er náttúrlega mjög misvísandi og villandi málflutningur.