veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir svarið. Það sem ég var að vitna hér til eru einfaldlega gögn sem hafa verið lögð fram, þannig að ég vísa því algjörlega á bug að ég fari með rangt mál.
Mig langar að spyrja hv. þm. Jens Garðar Helgason í seinna andsvari mínu að því hvort honum sé kunnugt um að annars vegar togarar sem landa afla af sameiginlegum miðum við Ísland og hins vegar togarar sem koma frá Noregi fái hærra gjald fyrir sinn afla en íslenskir togarar, þ.e. togarar útgerðarinnar. Er honum kunnugt um að svona viðskipti fari fram, og þá er ég að tala um á sama degi, sama veiðidag?