veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég vil bara byrja á að upplýsa hv. þm. Eirík Björn Björgvinsson varðandi veiðigjöldin og kostnaðinn. Árið 2023 var kostnaðurinn við þjónustu ríkisins við útgerðina 7.884 milljarðar. En á sama tíma var veiðigjaldið 10.833 milljarðar, þannig að það er einhver afgangur fyrir hæstv. ríkisstjórn að eyða í eitthvað annað.
Varðandi spurningu hans um verðlagningu þá eru það ekki togarar, það eru uppsjávarskip, norsk uppsjávarskip sem eru að landa í uppsjávarvinnslur. Þetta gerist á loðnuvertíðum og þá er það þannig að það sem íslensku fyrirtækin eru að gera er að þau eru að kaupa jaðarmagn. Þau eru að bæta við magni, þau eru tilbúin að borga hærra verð fyrir jaðarmagn í ljósi þess að kvótarnir hafa verið mjög litlir og menn eru að borga fyrir lítið jaðarmagn.