156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:01]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Ég fæ líka tækifæri til að koma hér upp í ræðu, ekki bara í andsvör. Í 1. gr. laga um veiðigjald, nr. 145/2018, kemur fram markmið laganna og tilgangurinn með innheimtu gjaldsins. Þar segir, með leyfi forseta:

„Veiðigjald er lagt á í þeim tilgangi að mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu og til að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar.“

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins er lögð áhersla á réttlátt auðlindagjald og þessi endurskoðun á lögunum er leið að þessu markmiði. Það er ljóst að breytingar á veiðigjaldinu munu vonandi geta uppfyllt tilgang laganna sem gjaldið, samkvæmt mínum upplýsingum, gerir ekki í dag og þær geta skapað auknar tekjur fyrir ríkissjóð, tekjur sem verði m.a. nýttar í innviðauppbyggingu um allt land. Það er mikið réttlætismál þar sem fiskurinn í sjónum er eign okkar allra. Breytingarnar á lögunum snúast eingöngu um uppfært mat á aflaverðmæti. Reiknireglan verður áfram sú sama. Það er mikilvægt að halda því til haga að af hagnaði útgerðarmanna fær þjóðin einn þriðja en útgerðin tvo þriðju. Útgerðir munu áfram halda meiri hluta hagnaðar af veiðum en með þessari breytingu er verið að tryggja að greiðsla þeirra fyrir aðgang að auðlindinni sé sanngjörn og endurspegli raunverulegt verðmæti fiskaflans.

Eins og við þekkjum hefur lengi verið sá grunur að verð í innri viðskiptum fyrirtækja, t.d. milli útgerðar og vinnslu í eigu sömu aðila, væri lægra en markaðsverð. Í ljós hefur komið að þetta er staðreynd og athuganir staðfesta þetta. Meðal annars þess vegna hefur verið ákveðið að bregðast við þessu ósamræmi og leiðrétta reiknistofn veiðigjaldsins með því að miða við markaðsverð fyrir þorsk og ýsu en við markaðsverð í Noregi fyrir uppsjávarfisk, eins og fram hefur komið hér í ræðum, þar sem það er ekki til virkur markaður með þær sjávarafurðir hér á landi.

Herra forseti. Veiðigjöldin skipta verulegu máli á Íslandi og það hefur verið samstaða um að leggja þau á. Ágreiningurinn hefur staðið um útfærsluna. Mig langar að nefna hérna nokkur tengd atriði. Fiskstofnar eru sameign þjóðarinnar og veiðigjöld tryggja að þjóðin fái arð af nýtingu auðlindarinnar, ekki bara útgerðin. Með öðrum orðum, fiskveiðiauðlindin tilheyrir þjóðinni. Veiðigjöld tryggja að þjóðin fái sanngjarnan hlut af arðinum.

Varðandi efnahagslega sanngirni þá borga útgerðir sem nýta takmarkaða auðlind fyrir afnotin, rétt eins og aðrir sem nýta takmarkaðar auðlindir eða opinbera innviði. Þetta á að koma í veg fyrir að hagnaður renni óheftur til fárra aðila. Með gjöldunum á skipting arðsins að vera sanngjarnari sem styrkir að mínu mati félagslegt réttlæti og traust innan samfélagsins. Hvað varðar tekjur í ríkissjóð þá geta veiðigjöld, fyrir utan það að eiga að standa undir þjónustu hins opinbera við greinina, verið mikilvæg tekjulind fyrir ríkið sem styrkir getu þess til að fjármagna m.a. velferðarþjónustu, innviði og byggðaaðgerðir. Þótt veiðigjöldin fari ekki beint til sveitarfélaga þá styrkir ríkið oft dreifðari byggðir með jöfnunarframlögum, byggðaaðgerðum eða innviðaáætlunum sem fjármagnaðar eru m.a. af ríkistekjum. Þessar tekjur geta stutt m.a. lítil sveitarfélög sem annars ættu í erfiðleikum. Með gjöldunum á að geta skapast hvati til skynsamlegrar auðlindanýtingar. Ef greinin þarf að borga fyrir afnotin er meiri hvatning til að halda fiskstofnum heilbrigðum til framtíðar. Með því að leggja gjöld á auðlindanýtingu er hvati til þess að nýta auðlindina á skynsamlegan hátt og tryggja stöðugleika í greininni. Þetta skilar sér í stöðugri atvinnu og tekjum fyrir sjávarplássin og sveitarfélög til lengri tíma.

Ég ítreka og legg sérstaka áherslu á að þótt veiðigjöld fari ekki beint til sveitarfélaga styrkir það byggðaþróun og jafnvægi að ríkið geti stutt dreifðar byggðir með þessum tekjum. Veiðigjöld tryggja að hluti af verðmætum sjávarauðlindarinnar renni til samfélagsins í stað þess að fara alfarið eða að vera alfarið í höndum útgerðarfyrirtækja. Þetta getur stutt við samfélagslega þjónustu og verkefni, jafnvel þótt tekjurnar fari fyrst í ríkissjóð eins og ég hef sagt áður. Veiðigjöld draga úr þeirri tilfinningu að fáir aðilar græði einhliða á sameiginlegri auðlind. Það getur styrkt samfélagslega sátt og skapað traust sem hefur óbein jákvæð áhrif á samfélögin í landinu.

Herra forseti. Ég hef átt samtöl við sveitarstjórnarfólk og íbúa um allt land síðastliðnar vikur til að kanna þeirra hug til leiðréttingar á veiðigjöldunum og ég reikna með að fleiri þingmenn hafi gert það. Ég þekki alveg ágætlega til á landsbyggðinni, hafandi búið m.a. í Norðausturkjördæmi í 24 ár og hef þess vegna ágætistilfinningu fyrir því hvernig hjartað slær eða hvernig púlsinn er. Ég veit ekki hvort það er tilviljun eða ekki, en enginn af þeim sem ég ræddi við í útgerðarsveitarfélögunum vill láta hafa eitthvað formlegt eftir sér af hræðslu við viðbrögð frá útgerðinni. Flestir, langflestir sem ég hef rætt við, eru jákvæðir gagnvart þessum breytingum og telja eðlilegt að þjóðin fái að njóta hærri tekna af sjávarauðlindinni en fólk er líka hrætt. Það er hrætt við viðbrögð útgerðarinnar. Ekki vegna þess að það telji að útgerðin geti ekki greitt hærra gjald heldur vegna hótana um að útgerðin og vinnslan fari. Þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál. Þetta er reyndar ekki nýtt, þessu er hótað nokkuð reglulega. Er eðlilegt að eigendur og stjórnendur fyrirtækja geti haft slík völd og áhrif á sitt samfélag? Ég bara spyr. Það er alvarlegt mál ef fólk þorir ekki að tjá sig vegna slíkra hótana.

Það er ekki illur ásetningur að leiðrétta veiðigjöldin. Það er okkar mat í Viðreisn að samfélagið eigi rétt á meiri tekjum af þeirri auðlind sem þjóðin telur sig eiga en ekki útgerðin ein og sér, þó að ekki væri í grunninn til annars en að standa undir þjónustu við greinina. Ég finn ekki annað á samtölum mínum en að samfélög séu tilbúin til að deila hagnaðinum með útgerðinni, þeim sem skapa verðmætin úr fiskinum sem veiðist í sjónum. Mér persónulega finnst ekkert eðlilegra en að útgerðin sé jákvæð fyrir því að þetta gjald til þjóðarinnar hækki og tekjurnar séu nýttar á jákvæðan hátt fyrir okkur öll. En það eru greinilega ekki allir sammála um það.

Fram hefur komið í umræðum að veiðigjaldið sé landsbyggðarskattur. Sjávarútvegsfyrirtæki eru rekin um allt land þótt stærstu fyrirtækin séu á tiltölulega fáum stöðum á landinu með sína starfsemi. Ég hef oft sagt sem innfæddur Reykvíkingur að ég komi úr stærsta sjávarplássi á Íslandi. Ég held að það sé mikið til í því. Í nýjustu tölum kemur fram að tíu stærstu útgerðir landsins haldi samtals á tæplega 57% alls úthlutaðs kvóta og að 15 stærstu haldi á 69%. Það er rétt að nefna að þrjú útgerðarfyrirtæki eru skráð á markaði, sem mér finnst jákvætt. Restin er í einkaeigu, oft í eigu fjölskyldna sem hafa svo sannarlega byggt upp sín fyrirtæki á mörgum árum. En í þessu samhengi er rétt að nefna að á milli þessara útgerða eru eignatengsl. Við getum sagt að það séu svona sirka fjórar blokkir ráðandi. Það eru Samherji, Brim, FISK-Seafood, sem er sjávarútvegsarmur Kaupfélags Skagfirðinga, og Ísfélagið sem í dag hafa yfir að ráða á sjötta tug prósenta af öllum úthlutuðum kvóta. Sex samstæður stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins borguðu helming allra veiðigjalda á síðasta ári. Samherji Ísland, Síldarvinnslan, sem Samherji á beint 30% hlut í, og Vísir, sem er í 100% eigu Síldarvinnslunnar, borguðu samtals næstum 20% af veiðigjaldi. Brim, stærsta einstaka útgerð landsins, borgaði tæp 10%. FISK-Seafood og Vinnslustöðin, sem FISK á um þriðjung í, borguðu rúmlega 8% og Ísfélagið borgaði tæplega 7%. Það sem af er þessu ári hefur 19,5% af greiddu veiðigjaldi verið greitt af fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og þau fyrirtæki sem greitt hafa mest eru með heimilisfesti í 101 Reykjavík.

Herra forseti. Gagnrýnendur frumvarpsins segja að leiðrétting veiðigjalda muni fyrst og síðast bitna á litlum og meðalstórum útgerðum landsins. Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu var bent á í umsögnum að taka þyrfti tillit til lítilla og meðalstórra útgerða. Lagt var til í umsögnum að frítekjumarkið yrði hækkað verulega og betur þrepaskipt. Tillit hefur verið tekið til þessara ábendinga. Í endurskoðuðu frumvarpi í framhaldi af þessum ábendingum kemur fram að tekið er undir mikilvægi þess að fjölbreyttur sjávarútvegur sé stundaður um allt land, sem er vilji okkar að sjálfsögðu í Viðreisn, og að milduð verði fjárhagsáhrif frumvarpsins fyrir litlar og meðalstórar útgerðir. Með vísan til ábendinga og athugasemda í umsögnum um drög frumvarpsins eru lagðar til breytingar á efni frumvarpsins er varða frítekjumarkið. Það er mjög jákvætt.

Virðulegi forseti. Með þessu frumvarpi er verið að tryggja að þjóðin fái loksins sanngjarnara gjald fyrir notkun á okkar sameiginlegu auðlind. Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er einhuga um að við náum fram þessu réttlæti og að auðlindagjöld skuli m.a. renna til nærsamfélaganna. Fiskurinn í sjónum er ein verðmætasta auðlind þjóðarinnar og hann er líka í eigu hennar. Það er tímabært að gjöld fyrir afnot af henni endurspegli það verðmæti.