veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Birni fyrir hans ræðu hér þótt ég sé ekki sammála inntakinu. Það er nefnilega þannig að hjá hv. stjórnarþingmönnum fer ekki alveg saman hljóð og mynd. Menn vilja sjá blómlegar sjávarbyggðir um allt land, lítil fyrirtæki og litlar útgerðir og allt á að vera mjög blómlegt og farsælt. En á sama tíma tala menn um sérhagsmunina og að það þurfi að fá sem mestan arð, að þjóðin þurfi að fá sinn réttláta hlut af nýtingu auðlindarinnar. Ég veit stundum ekki hvert hv. þingmenn eru að fara, af því að það fer ekki saman hljóð og mynd.
En nú á að tvöfalda veiðigjaldið, svo gott sem. Mig langar að spyrja hv. þm. Eirík Björn Björgvinsson: Nú er það þannig að fyrirtæki mega í dag vera með 12% af heildaraflahlutdeildinni; hámarkið er 12%, mismunandi eftir tegundum en heildarhlutdeildin er 12%. Við gætum í raun verið með 8–9 útgerðir í landinu og ég er alveg viss um að þá gæti hæstv. ríkisstjórn fengið enn meira frá viðkomandi fyrirtæki, ef við myndum bara hagræða nóg og samþjappa nóg. Mátti skilja ræðu hv. þingmanns á þá leið að hann vonist til þess að þessar aðgerðir verði til þess að samþjöppunin verði næg til þess að hægt sé að ná meira af atvinnugreininni?